Grunaður um átta lögbrot á tveimur dögum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. febrúar 2014 15:23 Hæstiréttur Íslands. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem grunaður er um þrjár líkamsárásir, tvö eignaspjöll, húsbrot, vopnalagabrot og fíkniefnalagabrot á rúmlega tveimur dögum. Fleiri mál er tengjast manninum eru í rannsókn. Maðurinn hefur ítrekað komist í kast við lögin undanfarin ár. Auk fyrrnefndra mála hefur kærði hlotið marga fangelsisdóma fyrir samskonar brot og nú eru til rannsóknar að því er fram kemur í greinargerð Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Frá árinu 2007 hafi hann fimm sinnum verið dæmdur fyrir líkamsrárásir. Þann 11. apríl 2011 hafi hann lokið afplánun tólf mánaða fangelsisdóms vegna ráns. Þá hafi hann í nóvember sama ár verið dæmdur fyrir frelsissviptingu. „Auk þessa hafi kærði verið dæmdur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur sviptur ökuréttindum, þjófnaði, og margsinnis fyrir vörslu fíkniefna,“ segir í greinargerðinni. Fjölmörg mál eru til rannsóknar þar sem hinn ákærði kemur við sögu. Má þar nefna líkamsárás við skemmtistað þar sem upptaka sýndi hinn grunaða sparka í höfuð liggjandi manns. Þá hótaði viðkomandi að skjóta mann með loftbyssu við fíkniefnasölu. Leitaði maður á slysadeild vegna skotsárs á höfði. Helgina 15.-16. febrúar er ákærði meðal annars sakaður um að hafa ýtt konu í gólfið svo hún fékk áverka í andlit, ruðst inn á heimili fólks vopnaður hnífi og stöðvaður við akstur bifreiðar sem hann var ekki skráður eigandi að. Við leit í bílnum fundust fíkniefni auk tónlistarbúnaðar sem grunaði og félagi hans gátu ekki gert grein fyrir.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira