Vigdís hafnaði fundarbeiðni um veikleika í fjárlögum Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. febrúar 2014 14:36 VISIR/DANIEL
Eins og Vísir hefur áður greint hafa skatttekjur af hverjum ferðamanni sem hingað kemur til lands lækkað um 46% frá árinu 2002.Á sama tíma hefur ferðamönnum fjölgað um 142%. Tæplega 300 þúsund ferðamenn komu hingað til lands árið 2002 samanborið við 670 þúsund árið 2013 og voru beinar skatttekjur af hverjum ferðamanni á verðlagi ársins 2013 helmingi lægri árið 2012 heldur en árið 2002. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Oddnýjar Harðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Á fundi fjárlaganefndar í dag var vakið máls á þessu og samkvæmt Oddnýju, sem á sæti í nefndinni, var óskað eftir fundi um þennan „veikleika á tekjuhlið fjárlaga“. „Hvernig stendur á þessum veikleika í skatttekjunum af svo ört vaxandi atvinnugrein?“ spyr Oddný á Facebook síðu sinni. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar og þingkona Framsóknarflokksins, hafnaði hins vegar beiðninni. Oddný Harðardóttir lagði í kjölfarið fram eftirfarandi bókun:„Undirrituð vil með þessari bókun mótmæla því harðlega að ósk um fund um veikleika á tekjuhlið fjárlaga hafi verið hafnað af formanni nefndarinnar. Fjárlaganefnd á að hafa eftirlit bæði með tekju- og gjaldahlið fjárlaga og því mótmælir undirrituð því að formaður vilji ekki rækja það hlutverk nefndarinnar og hafni fundarbeiðni er það varðar.“ Ekki náðist í Vigdísi Hauksdóttur við gerð þessarar fréttar.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira