Innlent

Bein útsending - Tekist á um Evrópumálin á Alþingi

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Evrópuskýrslan verður rædd áfram.
Evrópuskýrslan verður rædd áfram.
25 mál eru á dagskrá þingsins og heldur umræða um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um Evrópusambandið áfram. 

Rætt er um hið fræga minnisblað úr „lekamálinu“ svokallaða.

Klukkan 15:02

Katrín Júlíusdóttir spyr um fordæmi fyrir því að ráðuneyti hafi sætt lögreglurannsókn og kallar eftir vinnulagi ef svona uppákomur gerist ítrekað.

Einar K. Guðfinsson, forseti Alþingis, les upp tillögu Jóns Þórs Ólafssonar, þingmanns Pírata, um að þjóðaratkvæðagreiðsla verði sett framar í dagskrá þingsins, á undan skýrslu Hagfræðistofnunar. 

Píratar hafa fjallað mikið um að nú sé síðasti möguleikinn til þess að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitastjórnarkosningum. Til þess að uppfylla lög um þjóðaratkvæðagreiðslu þarf að klára þetta mál fyrir föstudag, ef þjóðaratkvæðagreiðslan verður samhliða sveitastjórnarkosningum. Birgitta Jónsdóttir hefur sagt það besta kostinn til þess að sem mest mark verður tekið á henni. 

Árni Páll segir mikilvægt að þessi tillaga verði færð framan í dagskrá þingsins. Katrín Jakobsdóttir tekur í sama streng.

„Augljós rök fyrir þessari dagskrártillögu,“ segir Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar Framtíðar.

Birgitta Jónsdóttir bendir á undirskriftalista sem skorar á ríkisstjórnina að taka þessa hugmynd tilbaka. Hún segir báða flokka hafa lofað þjóðaratkvæðagreiðslu. Það kallar fram sterk viðbrögð í þinginu.

Össur Skarphéðinsson lýsir yfir áhyggjum sínum af Bjarna Benediktssyni, hann segir Bjarna ekki hafa staðið við kosningaloforð.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur haldið kröftugar ræður í þinginu undanfarna daga. Hann hvetur þingmenn að styðja þessa tillögu. „Heyr, heyr“ heyrist í þingsal, líklega frá Birgtittu Jónsdóttur.

Mikil læti í kjölfar ræðu Katrínar Júlíusdóttur. Hún sagði þjóðaratkvæðagreiðslu vera líflínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Mikil áhersla er lögð á að þingsályktunartillaga Pírata innihaldi dagsetningar og tímamörk, en þingsályktunartillaga Gunnars Braga um að draga aðildarumsóknina í ESB til baka er ekki háð dagsetningum.

Gríðarlega margir þingmenn stjórnarandstöðunnar tjá sig um málið. Nú er Árni Þór Sigurðsson í pontu. 

Bjarni Benediktsson er kominn í pontu. Hann segir að ekkert hafi komið í veg fyrir að þessi tillaga hafi átt að koma fram. Allt verður vitlaust í þinginu. Væntanlega vísa þingmenn stjórnarandstöðu til þess að þeir hafi ekki getað vitað að stjórnin myndi leggja fram slit á aðildarviðræðum.

Einar K. Guðfinsson þurfti að slá af hörku í bjölluna frægu vegna láta í þingsal.

Katrín segir kosningaútgáfu Sjálfstæðisflokksins ekki meira virði en skeinipappír. Hún minnir á gömul loforð um upptöku Evru og þjóðaratkvæðagreiðslu. 

Einar K. biður þingmenn að passa orðalagið. 

Katrín grípur fram í fyrir Einari sem verður mjög reiður. Hún sagði að forseti hefði átt að skamma Gunnar Braga fyrir það sem hann sagði í gærkvöldi.

Guðmundur Steingrímsson segist vilja ræða málið vel. „Málþóf“ heyrist kallað úr sal.

Kristján L. Möller er í pontu og talar um loforð Sjálfstæðismanna um upptöku Evru. „Án inngöngu í ESB,“ kallar Bjarni Benediktsson.

Fundarstörf forseta hafa nú verið til umræðu í 40 mínútur.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, segist ekki styðja tillöguna, þó svo að hún vilji þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún vill ekki blanda þessu hitamáli við sveitarstjórnarkosningar.

Össur Skarphéðinsson óskar forsætisráðherra til hamingju með daginn. „Forsætisráðherra hefur svínbeygt formann Sjálfstæðisflokksins.“ Össur segist vilja hjálpa Bjarna Benediktssyni og styður þess vegna tillöguna.

Jón Þór útskýrir af hverju tillagan kemur fram svona seint. Og þessi pressa sé. Ástæðan er sú, segir Jón, er að þetta eru viðbrögð við tillögu Gunnars Braga um að draga aðildarumsókn í ESB til baka. Jón Þór vill að þjóðin fái að segja sitt. 

Bjarni Benediktsson mætir aftur í pontu. Hann segir forseta Alþingis hafa gengið langt í að leyfa umræðu um dagskrána. Bjarni bendir á að ekki sé hægt að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitarstjórnarkosningum. Það standist ekki lög vegna kjörskrár. 

Birgitta Jónsdóttir svarar Bjarna um hæl. Píratar hafa undirbúið breytingartillögu á þessari hlið laganna og tryggja þannig að þetta geti farið samfara sveitastjórnarkosningum. 

Mikið kurr er í þingsal og biður Einar K. um hljóð í salinn.

Árni Þór Sigurðsson svarar Bjarna einnig. Bjarni minnti Árna Þór á frumvarp sem hann lagði fram á síðasta þingi um að ekki mætti halda þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitarstjórnarkosningum. 

Róbert Marshall, bregst einnig við orðum Bjarna Benediktssonar. Hann segir Bjarna ekki getað rukkað menn um að standa við fyrri orð. 

Bjarni Benediktsson svarar Róberti úr þingsal. Og kvartar yfir því að Róbert sé ekki að halda sig við umræðu um dagskrá Alþingis.

Ásmundur Einar Daðason stígur í pontu. Minnir á tillögu Vigdísar Hauksdóttur á síðasta þingi. Hann segir þá sem sitja nú í stjórnarandstöðu hafa ráðist á Vigdísi á þeim tíma. Hann fagnar því að þeir séu nú í liði með Vigdísi.

Guðlaugur Þór Þórðarson er í pontu og Einar K. slær af hörku í bjölluna vegna hrópa úr þingsal. Hann skýtur á Samfylkingarfólk sem svarar úr salnum. Guðlaugur skellir upp úr vegna viðbragða stjórnarandstæðinga. Hann biður fólk að sjá það í anda að flokkar sem eru andvígir aðild sæki um hjá ESB.

klukkan 16:00

Klukkutími liðinn og enn er talað um dagskrá þingsins. 

Vigdís Hauksdóttir er mætt í ræðustól. Bendir á að ríkisstjórnarflokkarnir séu í meirihluta á þingi. Hún segir allt sem stjórnarandstaðan segi vera fyrirslátt.

Loksins fer atkvæðagreiðsla um tillögu Pírata fram. 

Árni Páll vill gera grein fyrir atkvæði sínu. Hann minnir á loforð Bjarna.

Birgitta vill líka gera grein fyrir sínu atkvæði. Hún biður þingmenn kærlega um að hleypa málinu að. Hún segir ekki hægt að snúa vilja meirihlutans í þessu og gerir sér grein fyrir að staðan virðist töpuð.

Bjarni Benediktsson stígur í pontu og segist ekki sjá ástæðu að taka málið á dagskrá. Hann segir aftur að málið hefði getað farið fyrir þingið fyrir löngu. Hann endurtekur aftur punktinn sinn að þetta samræmist ekki lögum. Hann segir að stjórnarandstaðan eigi að hætta málþófinu og greiða fyrir þingstörfum. 

Sjálfstæðismun aldrei styðja aðlögunarferli að Evrópusambandinu.

Eygló Harðardóttir sagðist í fyrstu styðja tillöguna - að því er virðist óvart og í hugsunarleysi - en var minnt á af flokkssystkinum sínum að hún ætti ekki að gera það. Málið vakti upp mikinn hlátur.

Atkvæðagreiðslan heldur áfram. Ennþá hafa allir stjórnarliðar sagt nei og allir stjórnarandstæðingar hafa stutt tillögu Pírata að breyta dagskrá þingsins, þannig að hægt væri að ræða strax um þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitastjórnarkosningum. 

Klukkan 16:12

Katrín Júlíusdóttir líkir dreifibréfum Sjálfstæðisflokksins aftur við klósettpappír, núna þennan þunna og ódýra.

Einar K. hvetur fólk í þingsal til að hafa hljóð.

Grindvíkingurinn Páll Valur Björnsson gerir grein fyrir atkvæði sínu. Hann segir alla vilja þjóðaratkvæðagreiðslu. Og tekst á við Bjarna, sem svarar úr sæti sínu.

Pétur H. Blöndal á háværasta „nei“ dagssins, hátt og skýrt.

Össur Skarphéðinsson endutekur orð sín um það að Framsóknarflokkurinn hafi svínbeygt Sjálfstæðisflokksins í þessu máli.

Hann segir einnig að Sjálfstæðisflokkurinn hafi veitt tveimur þingmönnum, þeim Ásmundi Einar Daðasyni og Vigdísi Hauksdóttur, forræði yfir utanríkismálum þjóðarinnar.

Greidd voru atkvæði um tillöguna sem var felld með 34 atkvæðum gegn 23. 6 þingmenn voru fjarverandi, forsætisráðherra þar á meðal.

Róbert Marshall tekur undir orð Svandísar Svavars um að vont sé að ekki sé hægt að ná samkomulagi um fyrirkomulag þingfundar. 

Hann telur að stjórnarflokkararnir eigi að hlusta á raddir aðila vinnumarkaðarins og mótmælenda um að leita betri lausnar á þeim vanda sem stendur fyrir aðildarviðræðunum við ESB en þá þingsályktun sem liggur fyrir þinginu.

Sigríður Ingibjörg telur umræðuna um þingsályktunina marklausa en um leið eitt af flaggskipum ríkisstjórnarinnar. Hún telur að í ljósi svaraleysis algjörlega óþarft að þinga fram eftir kvöldi.

Bryndís Pétursdóttir telur óeðlilegt að meirihlutinn ráði hvenær minnihlutinn megi halda heim að vinnudeginum loknum. Gott væri að komast heim og renna yfir skýrsluna sem tekin er til umræðu á morgun.

Tillaga um kvöldfund var samþykkt með 32 atkvæði gegn 21.

Geir Jón stígur í pontu. Hann segir tíma sinn á þingi hafa verið viðburðaríkan, þrátt fyrir að vera stuttur. Honum þykir merkilegt að fá að sitja inn í þingsal meðan mótmæli fara fram fyrir utan, enda hefur hann verið í öðrum sporum á liðnum árum.

Hann segir að taka þurfa á fáttækt á Íslandi. Lýkur tölu sinni á gullnu reglunni.

Karl Garðarsson gagnrýnir þingforseta fyrir að leyfa minnihlutanum að tala tæpitungulaust. Þeir stigu í pontu alls 292 um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra.

Reifar því næst hvaða þingmenn hafa talað mest á undanförnum dögum og Katrín Júlíusdóttir fer þar fremst meðal jafningja.

Lilja Rafney talar um átroðning á ferðamannastöðum og fyrirhugaðan ferðamannapassa. Segir gjaldtökuna ekki boða á gott og að einkaaðilar eigi ekki að takmarka aðgengi að náttúru Íslands.

Haraldur Einarsson talar um hjarta- og æðasjúkdóma og vekur aftur máls á „Go Red“ átakinu. Hann segir Íslendinga borða of mikið og óhollt. Bæta þarf næringarvitund landans með fræðslu, helst á fyrstu skólastigum. 

Haraldur lýsir yfir andúð á 50% afslætti á nammi í stórmörkuðum landsins á laugardögum.

Þorsteinn Sæmundsson þykir sárt að sitja undir því að vera kallaður hryggleysingi og lindýr. Telur tíma þingsins mjög illa nýttur og vill fá mikla umfjöllun um flókin mál.

Hann fagnar kvöldfundinum og leggur til að fundað verði fram eftir nóttu næstu daga.

Bjarkey Gunnarsdóttir ræðir um störf þingsins. Segir margra milljarða galla á fjárlögum ársins. Ekki liggur fyrir hvers vegna Landsspítalinn fór 1.5 milljarði fram úr fjárlögum.

Líneik Anna ræðir um viku móðurmálsins. Fræðir þingheim um þau 6700 virku tungumál sem til eru í heiminum. Vill að börn geti fengið að tjá sig á eigin móðurmáli.

Valgerður Gunnarsdóttir vekur máls á samgöngumálum á Austfjörðum og stórframkvæmdum þar.

Steingrímur J. hefur áhyggjur af umfjöllun erlendra fjölmiðla um landið. Þá sérstaklega orð forsætisráðherra sem túlka megi á þá leið að köldu blási á milli stjórnvalda og erlendra kröfuhafa.

Steingrímur gagnrýnir einnig forseta landsins, Ólaf Ragnar, fyrir að tala óvarlega um ósamþykkta þingsályktunartillögu um riftun aðildarviðræðna við ESB.

Sigríður Ingibjörg beinir orðum sinum að Haraldi Benediktssyni. Vísar til forsíðufréttar Fréttablaðsins um gagnrýni hans á tollahóp landbúnaðarráðherra. 

Gagnrýnir m.a. að neytendur hafi ekki fulltrúa í þessum tollahópum. Spyr hvort Haraldur muni beita sér fyrir því að fá ráðherra til að útskýra hvað hann ætlast fyrir með starfi þessa hóps.

Haraldur þakkar fyrirspurnina og segist tilbúinn að losna upp úr núverandi umræðu um tollvernd landbúnaðarins. 

Guðlaugur Þór fjallar um innflutningsmál Íslendinga. Segir kerfið óskynsamlegt og flókið og fullkomlega að óþörfu. Segir að þrátt fyrir mikinn innflutning landbúnaðarvara vilji hann fá fjölbreyttara vöruúrval í verslanir landsins. 

Oddný G. vill að brugðist sé við bágri fjárhagsstöðu framhaldsskólanna. Hún hefur áhyggjur af fyrirhuguðum kerfisbreytingum því áherslan sé lögð á lækkun rekstrarkostnaðar en ekki á hagsmuni nemenda.

Kristján Möller fagnar því að ESA veiti fjármuni til framkvæmda á Húsavík. Hann segir framkvæmdirnar mikið heillaskref fyrir norð-austur hornið. Hann vill hvetja meirihlutann að setja Seyðisfjarðargöng í samgönguáætlun.

Oddný G. vill fá skipulag á umræðurnar um skýrsluna sem nú verður tekin til umræðu, enda veigamikil. Segir forsætis- og utanríkisráðherra flissa í hliðarsölum Alþingishússins. 

Katrín Júlíusdóttir vill svör við spurningum. Hvers vegna þarf að keyra á kvöldfundi núna þrátt fyrir að 2 og hálfur mánuður séu eftir af þinginu í ár? Hún spyr enn og aftur af hverju ekki sé hægt að nýta tímann í dagvinnu þegar svo langt sé eftir af þinginu.

Guðbjartur Hannesson vill fá að vita hvað tekur við eftirr atkvæðagreiðsluna. Fær málið eðlilega þingmálsmeðferð.

Sigríður Ingibjörg gagnrýnir Karl Garðarson fyrir að segja fjölmiðlum að fylgjast með umræðunum þegar hann er sjálfur fjarrverandi. 



Beinni textalýsingu á Vísi er nú lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×