Freyja Haralds beitt ofbeldi fyrir framan stórmarkað: „Mig langaði að kasta upp“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 26. febrúar 2014 20:47 Í greininni skrifar Freyja um það hvernig fatlaðar konur verða samkvæmt alþjóðlegum rannsóknum fyrir margfalt meira ofbeldi en ófatlaðar konur. vísir/gva
Freyja Haraldsdóttir, varaþingmaður Bjartrar framtíðar, lýsir ofbeldi sem hún varð fyrir í vetur í nýjasta tölublaði Akureyrar Vikublaðs. Greinin er liður í átaki þar sem hvatt er til vitundarvakningar vegna ofbeldis gegn konum. Í greininni segir Freyja frá ferð í verslun í vetur þar sem hún beið fyrir framan bíl á meðan aðstoðarkona hennar gekk frá innkaupapokum. Eldri maður kom að Freyju og snerti hana ítrekað án þess að aðstoðarkonan yrði þess vör. „Hann byrjaði að strjúka á mér hárið, andlitið, bringuna, vinstra brjóstið, magann og niður lærið á mér,“ skrifar Freyja, sem leit í hina áttina og beið eftir að ofbeldinu lyki. Hún segist ekki hafa komið upp orði. „Þessar nokkru sekúndur liðu eins og heil eilífð. Næsta sem ég man er að aðstoðarkonan er að aðstoða mig inn í bíl og maðurinn stendur á bakvið okkur og starir á mig þar til búið er að loka bílnum og við keyrum burt. Mig langaði að kasta upp. Öskra. Eitthvað. En ég gat það ekki.“ Í greininni skrifar Freyja um það hvernig fatlaðar konur verða samkvæmt alþjóðlegum rannsóknum fyrir margfalt meira ofbeldi en ófatlaðar konur. Þá segir hún fatlaðar konur ólíklegri til að tilkynna það en aðrar og nefnir fyrir því ýmsar ástæður. „Á okkur má glápa, líkamar okkar eru oft skilgreindir afbrigðilegir og gallaðir og verða viðföng fagfólks sem vill gera við þá [...] Líkamar okkar eru eign almennings.“ Grein Freyju má lesa í heild sinni í Akureyri Vikublaði sem kemur út á morgun. Freyja var í viðtali í Íslandi í dag í desember á síðasta ári þar sem hún segir frá annarri reynslusögu sem hún lenti í vetur þegar maður öskraði þegar hann sá hana.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira