Ódýrustu grímubúningarnir kosta þúsundkall Haraldur Guðmundsson skrifar 27. febrúar 2014 08:36 Það styttist í öskudaginn með tilheyrandi búningum, grímum og andlitsmálningu. Vísir/Valli
Grímubúningar fyrir börn kosta frá um eitt þúsund krónum og upp í tíu þúsund, samkvæmt athugun Fréttablaðsins á verði búninga í nokkrum verslunum. Ódýrustu vörurnar geta verið nokkurra ára gamlar en hægt er að kaupa nýjar á undir tvö þúsund krónum. Í flestum tilvikum er ódýrara að kaupa búninga en leigja þá. Partýbúðin selur ódýrustu búningana, samkvæmt athugun blaðsins, á 990 krónur. „Það eru eldri búningar sem eru búnir að vera hjá okkur í einhvern tíma og við bjóðum þá sem valmöguleika fyrir fólk,“ segir Jón Gunnar Bergs, eigandi verslunarinnar, og bætir því við að flestir búningarnir kosti frá 2.990 krónum til 4.990. „Flestir búningarnir eru bara í einni stærð og miðast þá við þann aldurshóp sem þeir ættu að höfða til,“ segir Jón Gunnar.Einar Arnarsson, eigandi verslunarinnar Hókus Pókus á Laugavegi, selur búninga frá um tvö þúsund krónum og upp í tíu þúsund. „Ég myndi segja að flestir búningarnir séu að fara á bilinu tvö til sex þúsund og svo er oft aukakostnaður ef fólk vill bæta við hárkollum eða öðrum fylgihlutum. Vinsælasti búningurinn hjá stelpum heitir Monster High og hjá strákunum er þetta voða blandað. Þeir vilja vera ninjur, Batman eða Súperman,“ segir Einar. Í Hagkaup er hægt að fá búninga frá 1.699 krónum til 4.990. „Monster High eru vinsælastir og svo eru Íþróttaálfurinn og Latibær alltaf vinsæl á meðal yngri krakkanna. En verðið hjá okkur hefur ekki hækkað milli ára,“ segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups. Þeir sem eru í grímubúningaleit geta einnig haft samband við búningaleigur. Auður Þórisdóttir, kjólameistari og eigandi Saumsprettunnar, leigir barnabúninga á átta þúsund krónur en endurgreiðir viðskiptavinum fjögur þúsund þegar búningunum er skilað. „Flestir sem koma hingað eru að leita sér að búningum fyrir sérstök tilefni eins og partí og afmæli en ekki fyrir öskudaginn enda kostar í rauninni meira að leigja grímubúninga en kaupa,“ segir Auður.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira