"So Everything. Svo allt, virðulegi forseti“ Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 27. febrúar 2014 09:17 Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata VíSIR/GVA/PJETUR
Þingmenn stjórnarandstöðunnar óskuðu í gærkvöldi eftir því að ráðherrarnir Illugi Gunnarsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir yrðu viðstödd umræður um störf þingsins í ljósi fréttar á Rúv í gær. Þar var minnt á loforð þeirra í síðustu kosningabaráttu en öll þrjú höfðu haldið því staðfastlega fram að Evrópumálin yrðu útkljáð á þessu kjörtímabili með þjóðaratkvæðagreiðslu. Ráðherrarnir mættu ekki í pontu en það Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðismanna hélt uppi vörnum fyrir þá: „Hér er kallað eftir því að ráðherrar komi hér og gefi einhverjar skýringar á breyttri afstöðu sinni. Eru þeir ekki búnir að segja það? Hef ég verið að misskilja þetta eitthvað? Að þeir hafi metið það þannig, eins og staðan er núna, að það sé ákveðinn ómöguleiki að gera þetta. Að þessi ríkisstjórn sé í einhverri inngöngu í eitthvað samband sem hún vill ekki fara í. Kannski höfðu þeir einhverjar hugmyndir um það fyrir einu ári, einu og hálfu ári síðan. Ég segi bara eins og menn segja á útlensku: „So what?“ Er ekki afstaða þeirra bara svona núna? Og Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata svaraði Brynjari: Ráðherrarnir sem um ræðir, hæstvirtir innanríkis- og menntamálaráðherra, hafa ekkert verið hér til þess að tala um þetta. Þeir hafa ekkert verið hér til þess að svara spurningum. Sömuleiðis þá veit ég ekki alveg hvað ég á að segja um ummæli eins og „So what?“ yfir því að það séu svikin loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er þjóðinni hjartans mál. Það er ekkert af gamni sínu sem þúsundir koma dag eftir dag og mótmæla fyrir utan Alþingi. Það er ekkert auðvelt að safna saman 33.433 undirskriftum. Þetta er ekkert smámál. „So what?“ Allt segi ég. „So Everything". Svo allt, virðulegi forseti."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira