Sport

Starfsmaður slasaðist er bobsleði keyrði á hann

Hér er verið að fara með manninn á spítala.
Hér er verið að fara með manninn á spítala. vísir/ap
Ótrúlegt slys átti sér stað á bobsleða-brautinni í Sotsjí í morgun þegar sleði keyrði á starfsmann sem stóð á brautinni.

Verið er að rannsaka hvað maðurinn hafi verið að gera á brautinni er hann fékk sleðann á sig af fullum krafti.

Áður en keppni hefst í bobsleðakeppninni þá fer sleði á undan og athugar hvort allar aðstæður séu ekki eins og þær eigi að vera. Í þeirri ferð var keyrt á starfsmanninn.

Hann brotnaði á báðum fótum og fékk heilahristing. Keyrt var með hann í hraði á spítala. Hann er sagður hafa sloppið vel miðað við aðstæður en maðurinn hefði klárlega getað látið lífið í þessu slysi.

Hann er búinn að fara í aðgerð og er líðan hans stöðug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×