Messi skaut Barcelona á toppinn á ný 9. febrúar 2014 00:01 Pedro og Messi fagna marki Messi í rigningunni. Vísir/Getty
Barcelona lagði Sevilla 4-1 í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Gæði Lionel Messi skildi liðin að í kvöld en Messi skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.Alberto Moreno kom Sevilla yfir á 15. mínútu en Barcelona jafnaði metin gegn gangi leiksins á 34. mínútu. Alexis Sanches skallaði aukaspyrnu Messi í netið en Sanches var greinilega rangstæður þegar aukaspyrnan var tekin en markið fékk samt að standa. Messi kom sjálfur Barcelona yfir á 44. mínútu með glæsilegu skoti rétt utan teigs. Messi sýndi frábæra tækni sína þegar hann lyfti boltanum upp áður en hann smellti honum í hornið. Það var slagveðursrigning í Sevilla og hífandi rok en það kom ekki niður á skemmtanagildi leiksins. Leikurinn var galopinn og fékk Sevilla góð færi til að jafna metin en ef þú nýtir ekki færin þá refsar Messi. Hann kom Barcelona í 3-1 á 56. mínútu með góðu skoti í stöngina og inn eftir skyndisókn. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður var leikurinn hin besta skemmtun og var sigur Barcelona allt annað en auðveldur þó tölurnar kunni að gefa annað til kynna.Cesc Fabregas gerði þó út um leikinn á 88. mínútu með laglegu marki eftir skyndisókn. Barcelona er komið á topp deildarinnar með sigrinum en þrjú lið eru efst og jöfn með 57 stig. Barcelona er efst því liðið er með 46 mörk í plús. Real Madrid er annað með 41 mark plús og Atletico Madrid kemur næst með 40 mörk í plús.
Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Fleiri fréttir Víkingur - FH | Heldur FH sigurgöngunni áfram? Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Sjá meira