Hugsaðu jákvætt, það er léttara Kári Auðar Svansson skrifar 11. desember 2014 00:00 Geðorðin 10 Grein 1 Greinin er fyrsta greinin af tíu í greinaröð jafn margra úrræða og/eða félaga á geðheilbrigðissviðinu á höfuðborgarsvæðinu um Geðorðin 10. Höfundur er greindur með geðklofa. Margt bölsýnt fólk réttlætir bölsýni sína með eftirfarandi rökum: „Hvernig get ég verið bjartsýn(n) þegar heimurinn er í því ófremdarástandi sem raun ber vitni? Lítið bara í kringum ykkur: styrjaldir, hungursneyðir, fátækt, ofbeldi – úti um allt! Hvernig get ég leyft mér þá léttúð og óábyrgð að vera glaður/glöð í lund þegar veröldin er í slíku volli?“ Við þessu er hægt að tína til þessi mótrök: þinn hugur er þitt einkasvæði. Það hvort þú tileinkar þér jákvæða eða neikvæða hugsun hefur sáralítið um ástand heimsins að segja – en það hefur allt að segja um þína andlegu líðan. Hvorki bjartsýni þín né svartsýni breytir veröldinni að nokkru verulegu marki. Það eina sem um er að tefla í þessari skák er þín andlega velferð og þín geðræna heilsa. Fólki sem er með yfirdrifna ábyrgðarkennd, og finnst það ekki geta á heilu sér tekið fyrr en það hefur komið heiminum í skaplegt horf, væri hollt að íhuga þetta: mundu að heimurinn plumaði sig ágætlega áður en þú fæddist, og mun pluma sig ágætlega áfram þegar þú ert horfin(n) af jarðneska sviðinu. Eins og málshátturinn segir: „Kirkjugarðarnir eru fullir af ómissandi fólki.“ Og nú kemur stóra bomban: fyrir utan nokkur sjúkleg tilfelli þar sem lyf og vistun á geðdeild eru nauðsynleg þá eru þunglyndi og depurð oftast nær yfirstíganleg að mestu eða öllu leyti með því að temja sér jákvæðni í hugsun. Það er hægt að taka þá meðvituðu ákvörðun að sjá fremur hið góða og fallega í heiminum heldur en hið vonda og ljóta. Athygli okkar mannfólksins er hvort eð er alltaf og óumflýjanlega „selektíf“ – við sjáum veröldina eins og við viljum sjá hana; með þeim gleraugum sem við setjum á okkur. Og úr því svo er, hví þá ekki að setja upp rósrauðu gleraugun og reyna að sjá það besta í öllum manneskjum og öllum kringumstæðum? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Jarðakaup í nýjum tilgangi Halla Hrund Logadóttir Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun „Almennings“ samgöngur? Bragi Gunnlaugsson Skoðun Af auðvaldsmönnum og undirlægjuhætti Ester Hilmarsdóttir Skoðun Burt með pólitík á Bessastöðum Kristmundur Carter Skoðun Örlætisgerningur Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Norska veiðistöðin Friðrik Erlingsson Skoðun Köllum það réttu nafni: Fordóma Derek Terell Allen Skoðun Norskir herrar eða íslenskir? Þóra Bergný Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Baldur í þágu mannúðar og samfélags Anna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvar er Reykjavegur? Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Af auðvaldsmönnum og undirlægjuhætti Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Hafðu áhrif á líf barna Ída Björg Unnarsdóttir skrifar Skoðun Stórbætum samgöngur Logi Einarsson skrifar Skoðun Norska veiðistöðin Friðrik Erlingsson skrifar Skoðun Köllum það réttu nafni: Fordóma Derek Terell Allen skrifar Skoðun Ótrúverðugt plan að annars góðum markmiðum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Formleg uppgjöf Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Örlætisgerningur Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Fjármunum veitt þangað sem neyðin er mest Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Sjálfbær framtíð Vestfjarða Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir,Aðalsteinn Óskarsson skrifar Skoðun Burt með pólitík á Bessastöðum Kristmundur Carter skrifar Skoðun Náttúran njóti vafans, ótímabundið Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íþróttir fyrir öll, jöfnum og bætum leikinn Hólmfríður Sigþórsdóttir,Anna Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Nýr „loftslagsvænn“ iðnaður - neikvæð áhrif á lífríki og fiskveiðar Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun „Almennings“ samgöngur? Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Góður forseti G. Pétur Matthíasson skrifar Skoðun Hvers vegna Halla Tómasdóttir? Guðjón Sigurðsson skrifar Skoðun Heimildin sem hvarf úr frumvarpi matvælaráðherra Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Sníða sér stakk eftir vexti Guðni Magnús Ingvason skrifar Skoðun Norskir herrar eða íslenskir? Þóra Bergný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju ertu að bjóða þig fram? Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar Skoðun Hagfræðin á Heimildinni Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hreinleikaþráin Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Heimilisleysi blasir við öryrkjum Svanberg Hreinsson skrifar Skoðun Hvað getur Ísland gefið öðrum þjóðum? Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Veðrið, veskið og Íslendingurinn María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Íþróttir fyrir öll, jöfnum og bætum leikinn Hólmfríður Sigþórsdóttir,Anna Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Nýr „loftslagsvænn“ iðnaður - neikvæð áhrif á lífríki og fiskveiðar Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar