"Bjórmottan“ sendir þingmönnum skilaboð Bjarki Ármannsson skrifar 4. mars 2014 07:00 Fjölpóstar Bjórmotturnar hafa ratað í pósthólf þingmanna. Vísir/Pjetur/Samtök skattgreiðenda
Samtök skattgreiðenda standa um þessar mundir fyrir átaki sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um hátt áfengisgjald á Íslandi. Á vefsíðunni Bjórmottan er hægt að senda fyrirfram skrifaðan fjöldapóst á þingmenn og krefjast lækkunnar á bjórsköttum. Í póstinum stendur meðal annars: „Nú á 25 ára afmæli afnáms banns við dreifingu og sölu á bjór á Íslandi vil ég nota tækifærið og mótmæla háum sköttum á áfengi og miklum takmörkunum á drefingu þess og sölu.“ „Nú er því kominn tími til að stíga næsta skref og færa skattlagningu á bjór nær því sem algengast er í nágrannalöndum okkar, að sumum Norðurlanda frátöldum, og lækka skatta á bjórnum. Hið opinbera tekur til sín að meðaltali 75% smásöluverðs bjórs hjá ÁTVR í formi ýmissa skatta.“ Fjölmargir virðast hafa nýtt sér möguleikann á að senda bréf af þessu tagi ef marka má orð Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra á Facebook í gær. Þar skrifar hún: „Samkvæmt pósthólfinu mínu virðist lækkun áfengisgjalda vera eitt helsta baráttumálið þessa stundina. Ég skal viðurkenna að betri meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni eru aðeins ofar á forgangslistanum hjá mér.“ Í samtali við fréttastofu fyrir helgi sagðist Skapti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðanda, samtökin hafa sent skilaboð af þessu tagi til allra þingmanna. Hann sagðist þó hæfilega bjartsýnn á að þingmenn tækju til höndum við lækkun áfengisgjalda í náinni framtíð.
Tengdar fréttir Skálað og skatturinn ræddur Félag skattgreiðenda dreifir sérstökum bjórmottum í dag vegna 25 ára afmælis bjórsölu. 1. mars 2014 08:00 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira
Skálað og skatturinn ræddur Félag skattgreiðenda dreifir sérstökum bjórmottum í dag vegna 25 ára afmælis bjórsölu. 1. mars 2014 08:00