Everton vann Man. United og fylgir Arsenal sem skugginn - myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2014 14:30
Everton vann 2-0 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld í endurkomu David Moyes, fyrrum knattspyrnustjóra félagsins, á Goodison Park. Everton er því aftur bara einu stigi á eftir Arsenal í baráttunni um fjórða og síðasta sætið inn í Meistaradeildina en félagið setti félagsmet í sigrum í úrvalsdeildinni með því að landa þeim tuttugasta á leiktíðinni. Arsenal vann 3-0 útisigur á Hull fyrr í dag og setti pressu á Everton-liðið en lærisveinar Roberto Martinez sýndu David Moyes hvað þeir hafa vaxið og dafnað síðan að hann yfirgaf félagið síðasta sumar og tók við Manchester United. Manchester United tapaði þarna ellefta deildarleiknum sínum á tímabilinu en liðið er í sjöunda sæti nú 23 stigum á eftir toppliði Liverpool og 13 stigum frá síðasta sætinu inn í Meistaradeildina. Everton skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleiknum. Það fyrra skoraði Leighton Baines út vítaspyrnu á 28. mínútu eftir að Phil Jones varði skot Romelu Lukaku með hendi. Kevin Mirallas skoraði síðan annað markið á 43. mínútu eftir frábæra stungusendingu frá Seamus Coleman en Coleman átti frábæran leik í dag. Everton var með góð tök á leiknum í seinni hálfleiknum og gat auðveldlega bætt við mörkum en þau urðu ekki fleiri. Wayne Rooney fékk frábært færi til að skora á móti sínu uppeldisfélagi í lokin en Tim Howard varði glæsilega frá honum.
Enski boltinn Mest lesið Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Fótbolti McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana Golf Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Dagskráin í dag: Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar Sport Courtois byrjar úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Íslenski boltinn Tveir Færeyingar til silfurliðsins Handbolti Benedikt tekinn við Stólunum Körfubolti Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Íslenski boltinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Rooney gæti fengið nýtt starf þrátt fyrir hræðilegan árangur síðast Harry Maguire missir af bikarúrslitaleiknum Sjá meira