„Fyrst og fremst fyrirsláttur“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 6. mars 2014 10:19 Stefán Konráðsson til vinstri og Páll Hilmarsson til hægri. „
Það kom verulega á óvart að heyra af þessari svokölluðu átta ára reglu,“ segir Páll Hilmarsson bæjarfulltrúi sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, sem hlaut ekki brautargengi við uppstillingu á framboðslista fyrir komandi kosningar.Vissi ekki af reglunni Ástæðan sem Páli var gefin fyrir því að hann fengi ekki sæti ofarlega á lista, eins og hann sóttist eftir, var að hann hafi verið átta ár í bæjarstjórn og að uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ hafi unnið eftir þeirri reglu að enginn bæjarfulltrúi ætti að sitja lengur en tvö kjörtímabil. Páll segir regluna aldrei hafa borið á góma áður en fulltrúi nefndarinnar hafði samband við hann og bauð honum að sitja í 20. sæti listans. „Í janúar var ég boðaður í viðtal hjá nefndinni. Þar var farið yfir minn pólitíska feril og hvað ég hefði fram að færa til bæjarbúa. Þar var aldrei minnst á þessa reglu, enda hefði ég aldrei boðið mig fram ef ég hefði vitað af þessari reglu.Fyrst og fremst fyrirsláttur Undir þessi orð tekur annar bæjarfulltrúi, Stefán Konráðsson, sem heyrði heldur aldrei af þessari reglu. Stefáni var boðið 21. sæti listans. „Ég tek undir þær hugmyndir að menn eigi ekki að vera of lengi í stjórnmálum. En ef ég hefði vitað af þessari reglu hefði ég aldrei sóst eftir sæti á listanum. En ég held að þessi regla sé fyrst og fremst fyrirsláttur til að komast frá málinu,“ segir Stefán. Sjálfstæðismenn í Garðabæ ákváðu í vetur að skipa uppstillingarnefnd í stað þess að halda prófkjör til þess að raða frambjóðendum á lista. Listinn sem uppstillingarnefnd lagði til var umdeildur. Uppstillingarnefnd eða prófkjör Samkvæmt heimildum Vísis var ákvörðunin um að láta uppstillingarnefnd raða frambjóðendum á lista, í stað þess að efna til prófkjörs, nokkuð umdeild. Uppstillingarnefnd átti að líta til aldursdreifingu frambjóðenda, kynjahlutfalls og gæta þess að sjálfstæðismenn á Álftanesi ættu sína fulltrúa á listanum, en þetta verða fyrstu sveitastjórnarkosningarnar eftir sameiningu Álftaness og Garðabæjar. Aðeins einn af núverandi bæjarfulltrúum sjálfstæðisflokksins í Garðabæ verður á listanum, fyrir utan Erling Ásgeirsson sem er í heiðurssæti. Bæði Stefán og Páll sitja nú í sjö manna bæjarstjórn Garðabæjar. Sjálfstæðismenn eiga fimm bæjarfulltrúa, M-listi fólksins á einn fulltrúa og Samfylking á einn.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira