Flytur á sögusviðið Friðrika Benónýsdóttir skrifar 20. desember 2014 12:00 Brynja Sif „Okkur þykir óskaplega vænt um Zürich þannig að þetta er mjög spennandi.“ Mynd úr einkasafni
Nikký er 12 ára ákveðin stelpa með einstaka hæfileika,“ segir Brynja Sif Skúladóttir höfundur bókarinnar Nikký og baráttan um bergmálstréð sem er framhald sögunnar Nikký og slóð hvítu fjaðranna sem kom út í fyrra. „Hún býr hjá mömmu sinni í Reykjavík þegar sagan hefst en amma hennar Mandana og föðurfjölskylda hennar búa í sirkus við Zürich-vatn og eiga ættir sínar að rekja til Rúmeníu. Hún fær að eyða sumrinu hjá ömmu sinni í Zürich þar sem hún ætlar að læra betur að beita óvenjulegum hæfileikum sem hún er gædd en hún getur náð sambandi við trén og skilur tungumál þeirra. Nikký hefur haldið þessum hæfileika leyndum á Íslandi en í föðurætt hennar hefur þessi hæfileiki erfst mann fram af manni og þykir fullkomlega eðlilegur þar.“ Nikký og baráttan um bergmálstréð hefst þegar Nikký er á leiðinni ein til Zürich til þess að kynnast fjölskyldunni betur og eyða sumrinu i sirkusnum. Hún er auðvitað rétt lögð af stað þegar dularfullir atburðir fara að gerast. Við sögu koma galdrar og álög sem ógna sirkusnum og margt spennandi gerist, sem ekki er ástæða til að fara nánar út í hér til að spilla ekki fyrir lesendum. Býrð þú í Sviss, eða hvers vegna ákvaðstu að hafa sögusviðið þar? „Fyrir tíu árum bjuggum við í Þýskalandi, rétt við landamæri Sviss, og næsta stóra borg var Zürich sem bara heillaði mig algjörlega,“ segir Brynja Sif. „Hins vegar er það skemmtileg tilviljun að núna í febrúar erum við að flytja til Zürich á nýjan leik þar sem maðurinn minn er að taka við yfirlæknisstöðu á borgarspítalanum. Hann segir reyndar að þetta hljóti að hafa verið skrifað í stjörnurnar fyrst ég var búin að skrifa tvær bækur sem gerast þar í borginni,“ segir Brynja Sif og hlær. „Okkur þykir óskaplega vænt um Zürich þannig að þetta er mjög spennandi og gaman að fara inn á sögusvið Nikkýjar og sjá landið og borgina með hennar augum.“ Þannig að það er nokkuð ljóst að hún mun halda áfram að vera í Sviss í næstu bók? „Það kemur í ljós,“ segir Brynja Sif dularfull. „Ég er aðeins byrjuð á þriðju bókinni og í henni ferðast sirkusinn reyndar til Íslands, en aðaleinkenni Nikkýjar eru hennar einstöku hæfileikar og auðvitað að hún er frá tveimur löndum og hefur þá sýn sem fólk hefur þegar það hefur kynnst einhverju öðru en heimahögunum.“
Menning Mest lesið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira