Árni segir að það þurfi að grisja skóginn við Rituhóla 8. maí 2013 10:02 „
Ég var nú ekki í bænum þegar þetta gerðist, en það er engin spurning að það þarf að grisja þetta talsvert,“ segir Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, en hann býr á Rituhólum, steinsnar frá trjálundinum sem var grisjaður af íbúum Rituhóla þann 1. maí síðastliðinn. Eins og kunnugt er tóku nokkrir íbúar á Rituhólum sig til á baráttudegi verkalýðsins og söguðu niður hundruð trjáa sem þeir töldu byrgja sýn úr húsum sínum. Árni er þó alsaklaus af þeim gjörningi og segist ekki hafa vitað að til stæði að grisja skóginn.Í fréttum Stöðvar 2 í síðustu viku fullyrtu íbúar við fréttamann að þau hefðu fengið leyfi til að grysja skóginn hjá Reykjavíkurborg og það í tengslum við hreinsunarátak sem þau stóðu fyrir. Það breytir ekki því að Björn Júlíusson, umsjónarmaður Útmarka Reykjavíkurborgar, telur að lög hafi verið brotin. Árni segir stórbrotið útsýni á bak við skóginn og það sé synd að íbúar fái ekki að njóta alls þess sem svæðið hafi upp á að bjóða. Þess má geta að lóðirnar í Rituhólum og nærliggjandi götum voru á sínum tíma seldar sem útsýnislóðir. „Svo var þarna blómlegt fuglalíf, þarna voru stelkar, hrossagaukar og rjúpa, fyrir utan smáfuglana. Núna sést ekki fugl þarna,“ segir Árni. Spurður hvort íbúar njóti ekki í staðin skjóls frá norðanáttinni, svarar Árni því til að vindurinn hafi aldrei komist alla leiðina upp, heldur virðist hann beygja nokkuð neðar og tvístrarst svo yfir Vesturlandsveginum. „Norðanáttin nær ekkert upp í hólana,“ segir hann. Árni segir mikilvægast að leysa þetta mál með íbúum á svæðinu. „Það þarf að taka tillit til þeirra líka,“ bendir Árni á og bætir við: „Og þó að það sé grisjað þarna eða fellt, þá tekur það ekki nema 15 til 20 ár að fá trén aftur.“ Þá á hann við að þarna sé gróðursælt og landið auðvelt til ræktunar. Hann segir að fyrst og fremst þurfi að gera þetta þannig að svæðið sé vel heppnað og í sátt við íbúa og borgaryfirvöld, „þannig að þetta sé bæði fallegt og vænt,“ segir Árni. Hann segist trúa því að það sé lítið mál að sameina sjónarmið borgarinnar og íbúa á svæðinu.
Tengdar fréttir Reykvíkingur ársins saknar trjánna sinna Þroskaskert ungmenni sem hafa árum saman hlúð að trjánum í Breiðholtshvarfi eru miður sín yfir skógarhöggi íbúa við Rituhóla. Leiðbeinandi þeirra, Theodóra Guðrún Rafnsdóttir, hefur annast lundinn í yfir 30 ár og fékk áfall fyrir helgi. 8. maí 2013 07:00 Íbúar í Breiðholti gætu verið kærðir Nokkrir íbúar í Breiðholti freistuðu þess í vikunni að endurheimta útsýni sitt og grisjuðu skóg á landi Reykjavíkurborgar. Umsjónarmaður svæðisins segir sérhagsmunagæslu íbúa dýrkeypta, skemmdirnar séu miklar og að lög hafi verið brotin. 3. maí 2013 20:38 Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Sjá meira
Reykvíkingur ársins saknar trjánna sinna Þroskaskert ungmenni sem hafa árum saman hlúð að trjánum í Breiðholtshvarfi eru miður sín yfir skógarhöggi íbúa við Rituhóla. Leiðbeinandi þeirra, Theodóra Guðrún Rafnsdóttir, hefur annast lundinn í yfir 30 ár og fékk áfall fyrir helgi. 8. maí 2013 07:00
Íbúar í Breiðholti gætu verið kærðir Nokkrir íbúar í Breiðholti freistuðu þess í vikunni að endurheimta útsýni sitt og grisjuðu skóg á landi Reykjavíkurborgar. Umsjónarmaður svæðisins segir sérhagsmunagæslu íbúa dýrkeypta, skemmdirnar séu miklar og að lög hafi verið brotin. 3. maí 2013 20:38