Íslenski boltinn

Fram og Valur að keppa um Jóhannes Karl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Jóhannes Karl Guðjónsson. Mynd/Daníel
Jóhannes Karl Guðjónsson spilar örugglega í Pepsi-deild karla næsta sumar en hann hefur fengið leyfi frá ÍA til að ræða við önnur félög. Tvö félög í Pepsi-deildinni hafa boðið miðjumannninum samning.

Valtýr Björn Valtýsson sagði frá því í kvöldfréttum Stöðvar tvö að Jóhannes Karl sé með tilboð frá tveimur Reykjavíkurfélögum, Fram og Val.

Bjarni Guðjónsson, eldri bróðir Jóhannesar er tekinn við þjálfun Fram en Valsmenn hafa líka boðið honum samning. Þá er vitað af áhuga Íslandsmeistara KR en bróðir hans Bjarni Guðjónsson kom til ÍA frá KR sumarið 2008.

Jóhannes Karl er í Englandi í vikufríi samkvæmt heimildum Íþróttadeildar 365 og mun taka ákvörðun um framhaldið þegar hann kemur heim í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×