Sjá eftir að hafa heiðrað barnaníðing vegna umfjöllunar Kastljóss 8. janúar 2013 12:48 Karl Vignir í þættinum í gærkvöldi.
Í yfirlýsingu frá Áskirkju kemur fram að það hafi verið rangt hjá kirkjunni að veita Karli Vigni Þorsteinssyni viðurkenningu fyrir störf sín í þágu kirkjunnar sem sjálfboðaliði. Orðrétt segir í yfirlýsingunni: „ Í Áskirkju voru 30 einstaklingum veittar slíkar viðurkenningar, og var Karl Vignir í þeim hópi. Í ljósi þess sem fram hefur komið í umfjöllun Kastljóss nú, og Karl Vignir játaði þar á sig, er augljóst að sú ákvörðun var röng." Þess má geta að DV hafði ítrekað fjallað um kynferðismisnotkun Karls Vignis þegar hann starfaði á Kumbaravogi. Það var árið 2007. Einnig fjallaði Morgunblaðið um misnotkun Karls Vignis, og var hann nafngreindur í báðum umfjöllununum. Engu að síður fékk hann viðurkenningu kirkjunnar á síðasta ári. Þá kemur ennfremur fram í tilkynningunni að Karl Vignir hafi aldrei annast um né komið á nokkurn hátt að starfi með börnum og unglingum í Áskirkju. Samkvæmt upplýsingum frá kynferðisafbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur Karl Vignir verið boðaður í skýrslutöku vegna þáttarins síðdegis í dag. Hér má lesa tilkynningu kirkjunnar í heild sinni: Í tilefni af umfjöllun Kastljóss um málefni Karls Vignis Þorsteinssonar og þátt hans sem sjálfboðaliði í safnaðarstarfi í Áskirkju í Reykjavík, vilja sóknarprestur, sóknarnefnd og starfsfólk Áskirkju koma eftirfarandi á framfæri: Karl Vignir hefur aldrei annast um né komið á nokkurn hátt að starfi með börnum og unglingum í Áskirkju. Þátttaka hans í starfi sem sjálfboðaliði við Opið hús aldraðra hófst í kringum árið 2003 með aðstoð í eldhúsi. Hann varð síðar hluti af hópi sjálfboðaliða í heimsóknaþjónustu í söfnuðinum. Í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum árið 2007 um Karl Vigni, var hann leystur frá störfum sem sjálfboðaliði, og hefur síðan ekki gegnt neinum trúnaðarstörfum fyrir kirkjuna. Á Evrópuári sjálfboðastarfs í kirkjunni 2011 var þjóðkirkjusöfnuðum boðið að veita sjálfboðaliðum viðurkenningu fyrir störf sín. Í Áskirkju voru 30 einstaklingum veittar slíkar viðurkenningar, og var Karl Vignir í þeim hópi. Í ljósi þess sem fram hefur komið í umfjöllun Kastljóss nú, og Karl Vignir játaði þar á sig, er augljóst að sú ákvörðun var röng. Hugur okkar er hjá þeim sem Karl Vignir hefur beitt ofbeldi.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira