Kaupendur fyrstu íbúðar á fertugsaldri Ólöf Skaftadóttir skrifar 19. júní 2013 07:00 Húsnæðisverð er hátt og leigumarkaðurinn sprunginn. Það hefur í för með sér að unga fólk býr lengur í foreldrahúsum en áður. Fréttablaðið/GVA
Hækkandi íbúðaverð hefur haft þær afleiðingar að kaupendur fyrstu íbúðar verða sífellt eldri. Leigumarkaður er sprunginn og fólk býr lengur í foreldrahúsum en áður tíðkaðist. Þetta er mat Finns Boga Hannessonar, verkefnisstjóra hjá Íslandsbanka. Finnur segir hækkandi íbúðaverð ungu fólki erfitt. „Það er orðið erfiðara að safna fyrir útborgun í fyrstu íbúð,“ segir Finnur og bætir við að ekki sé lengur boðið upp á lánsveð. Íslandsbanki lét vinna skýrslu um þróun á fasteignamarkaði og var hún borin saman við þróunina á Bretlandi. „Magnús Árni Skúlason, sem vann skýrsluna, benti á að bresk könnun á vegum Post Office Mortgages hefði varpað ljósi á þá staðreynd að meðalaldur Breta sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign er 35 ár, en var 28 ár fyrir áratug síðan. Og fyrir fimm árum var meðaldurinn þrjátíu ára. Þetta er fljótt að breytast og hækka,“ segir Finnur. „Þetta er örugglega mjög sambærilegt hjá okkur en kannski ekki jafn hár aldur,“ útskýrir Finnur. Í hverjum árgangi á aldursbilinu 25 til 35 ára eru að meðaltali 4.500 manns. Þannig eru 4.700 einstaklingar 30 ára í dag. „Þessir stóru árgangar eru að hafa töluverð áhrif á fasteignamarkaðinn því einhvers staðar verður fólk að búa,“ segir Finnur. „Og það er það sem er kannski dálítið að halda verðinu svona háu, það er þessi aldurssamsetning þjóðarinnar.“ Að sögn Finns er leigumarkaðurinn sprunginn og fólk býr mun lengur í foreldrahúsum en áður var. „Það eru ekki allir sem hafa efni á því að búa í leiguhúsnæði. Enda kannski margir sem búa lengur í foreldrahúsum í því skyni að safna sér fyrir fyrstu eigninni.“ „Það tekur tíma að kaupa sér fasteign,“ segir Finnur að lokum.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira