Flensutoppnum ekki náð segir sóttvarnarlæknir Hugrún Halldórsdóttir skrifar 20. janúar 2013 12:11 Haraldur Briem.
Heldur hefur dregið úr fjölgun flensutilfella hér á landi en þrátt fyrir það hefur toppnum þó ekki verið náð segir sóttvarnalæknir. Óvissustigi var lýst yfir á Landspítalanum á föstudag vegna inflúensu, nóróveiru og RS-vírusfaraldurs og er það enn í gildi. Um fjörutíu voru í einangrun á spítalanum í gær og svo virðist sem fjöldinn sé óbreyttur í dag að sögn Más Kristjánssonar yfirlæknis smitsjúkdómalækninga. Fleiri tugir starfsmanna hafa verið kallaðir á aukavakt vegna álags, tvær deildir sem venjulega eru lokaðar um helgar hafa verið opnaðar og ættingjar sjúklinga eru nú beðnir um að koma ekki í heimsókn á spítalann nema í brýnustu nauðsyn. Svo virðist sem rólegra sé á bráðamóttökunni í dag miðað við það sem á undan hefur gengið en Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir þó að flensutilfellum sé enn að fjölga. „Það eru ekki tvöföldun á tilfellum eins og var á milli vikna fyrst. Þetta er aukning en það dregur semsagt úr brattanum í þessu en við erum ekki þar með sagt búin að ná toppnum," segir Haraldur. Haraldur býst við að inflúensa og RS-vírus eigi eftir að halda áfram að greinast þennan mánuðinn og eitthvað fram í febrúar. „Ef maður byggir á reynslu fyrri ára. Þetta gengur yfir á svona fjórum til átta vikum," segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Sjá meira