Geta ekkert aðhafst í deilunni við CBS Þorgils skrifar 4. janúar 2013 08:00 Íslenska menntamálaráðuneytið segist ekkert geta aðhafst vegna meintrar mismununar Viðskiptaháskóla Kaupmannahafnar. Stjórnvöld ytra segja skólanum heimilt að setja viðmið um dönskukunnáttu en námsmaður sem var hafnað ætlar ekki að gefast upp.
Menntamálaráðuneytið á Íslandi getur ekki aðhafst vegna meintrar mismununar í inntökukröfum Viðskiptaháskólans í Kaupmannahöfn (CBS) um dönskukunnáttu. Þetta segir í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins. Einn þeirra námsmanna sem kvörtuðu hyggst halda málinu til streitu. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu kvörtuðu sex námsmenn hið minnsta til íslenska sendiráðsins vegna þess sem þeir töldu of háar kröfur. Meðal annars telja þeir það viðmið CBS um að íslenskir stúdentar hafi lokið átján einingum í dönsku sem jafngildi A-stigs prófi þar í landi vera óraunhæft þar sem einungis stöku skólar hér á landi bjóði upp á meira en níu einingar. Skólinn var einnig sakaður um mismunun með því að brjóta gegn sáttmála Norðurlandaríkjanna sem kveður á um að tungumál ríkjanna séu metin til jafns milli landanna. Í samtali við Fréttablaðið hafnaði talskona CBS því að þetta væri mismunun. Sama krafa, A-stigs próf í dönsku, væri sett öllum sem sæktu um nám á dönsku við skólann. Einnig væri í boði að taka stöðupróf sem fram færu tvisvar á ári. Íslenska menntamálaráðuneytið sendi fyrirspurn til danskra stjórnvalda um málið og fékk þau svör í síðasta mánuði að hver skóli mætti setja sín viðmið varðandi A-stigs próf og CBS væru innan marka. „Við sjáum ekki að ráðuneytið geti aðhafst varðandi ákvarðanir einstaka háskóla sem virðast teknar innan ramma viðeigandi reglugerða,“ segir í svari ráðuneytisins. „Háskólinn kann hins vegar að bera ábyrgð gagnvart umsækjendum ef hann mismunar þeim eða gefur misvísandi upplýsingar.“ Einn námsmaðurinn sem fékk synjun, Gunnar Gíslason, segist í viðtali við Fréttablaðið ekki ætla að láta þetta stöðva sig. Rök Dananna séu meðal annars byggð á úreltri reglugerð um framhaldsskóla. „Þetta er hrein og klár mismunun einfaldlega af því að Norðmenn, Svíar og Finnar fá að skipta út sínu móðurmáli fyrir dönsku en ekki Íslendingar. Það stríðir líka klárlega gegn meðalhófsreglu að krefjast átján eininga sem ekki er hægt að uppfylla.“ Gunnar segist munu leita til umboðsmanns danska þingsins ef ráðuneytið fellst ekki á hans rök. „Þetta fer svo fyrir dómstóla ef með þarf.“ Fréttablaðinu er ekki kunnugt um að fleiri af stærri háskólum Danmerkur geri sömu kröfur um dönskukunnáttu, en fyrir liggur að kennslusvið Háskóla Íslands tekur Norðurlandabúa inn í nám á íslensku án sérstakra skilyrða.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira