Frumvarp um Happdrættisstofu vegur að friðhelgi einkalífs Erla Hlynsdóttir skrifar 17. janúar 2013 18:41
Frumvarp innanríkisráðherra um Happdrættisstofu vegur að viðskiptafrelsi og friðhelgi einkalífsins. Þetta er mat alþjóðlegrar stofnunar um tjáningar- og upplýsingafrelsi. Þá telur þingmaður frumvarpið geta takmarkað starfsemi hlutabréfasjóða á netinu, og jafnvel netleikja með sitt eigið hagkerfi. Frumvarp Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, felur í sér innleiðingu á auknu eftirliti með happadrættum, auknar forvarnir, og takmörkun á aðgengi að fjárhættuspilum á netinu. Í umsögn IMMI, alþjóðlegrar stofnunar um tjáningar- og upplýsingafrelsi, um frumvarpið, segir að til að koma í veg fyrir að fólk spili fjárhættuspil á netinu þurfi að fylgjast með netnotkun, og þar með ritskoða hana. Bent er á að slík tíðkist jú í sumum löndum, til að mynda Saudi Arabíu, Sýrlandi og Afganistan. Birgitta Jónsdóttir þingmaður sem hefur sérhæft sig í netfrelsi hefur miklar efasemdir um frumvarpið, meðal annars því það komi í veg fyrir dulkóðun upplýsinga. „Það er gríðarlega mikilvægt að þú getir hulið slóð þína af mörgum ástæðum. Það þarf ekki endilega að vera því þú hafir eitthvað að fela heldur vilt þú ekki endilega senda póstkort í hvert skipti sem þú ert í samskiptum við vini þína, vandamenn eða viðskiptamenn," segir Birgitta. Þá segir í umsögn IMMI að frumvarpið sé með öllu vanhugsað og sé ólíklegt til að leysa nokkurn vanda. Þá veki það upp spurningar um atriði sem snúi að tjáningarfrelsi, viðskiptafrelsi, friðhelgi einkalífsins og öðrum grundvallarmannréttindum. „Við þurfum líka að spá í það hvernig við skilgreinum það sem á að fyrirbyggja hjá Happadrættisstofu. þar gætu fallið undir til dæmis PartyPoker, PiratePuzzle, hlutabréfaviðskipti, peningamarkaðssjóðir. Á gráa svæðinu gæti verið til dæmis Eve online," segir Birgitta.Umsögn IMMI má lesa hér.
Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Sjá meira