Vilborg komin á Suðurpólinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. janúar 2013 20:37
Vilborg Arna Gissurardóttir varð í kvöld fyrsti Íslendingurinn til þess að ganga einn síns liðs á Suðurpólinn. Ganga Vilbogar hefur staðið yfir undanfarna tvo mánuði og eru um 1140 kílómetrar að baki. Elín Sveinsdóttir, sem hefur verið Vilborgu Örnu innan handar hér á landi á meðan á göngu hennar hefur staðið, staðfesti í samtali við Vísi fyrir stundu að Elín hefði lokið göngu sinni um 23 leytið að íslenskum tíma. „Hún er komin," sagði Elín sem verið hafði í sambandi við ættingja Vilborgar Örnu. „Það var rétt fyrir ellefu sem hún kom. Hún tjaldaði, kom sér fyrir og er nú að hringja í ættingja sína og vini," sagði Elín.Það hafa skipst á skin og skúrir á langri göngu Vilborgar Örnu. Um tíma þjáðist hún af vökvaskorti en náði sér vel á strik á nýjan leik. Eins og gefur að skilja hefur sleði Vilborgar Örnu, sem hún hefur haft í eftirdragi, lést eftir því sem á göngu hennar hefur liðið. Sem betur fer enda þreytan mikil eftir tveggja mánaða göngu. Reiknað hafði verið með því að göngu Vilborgar Örnu myndi ljúka um kvöldmatarleytið. Elín segir að síðasti dagurinn hafi verið erfiður skíðalega séð. „Hún er brött eftir erfiðan dag, búin að koma sér fyrir í tjaldinu sínu og sefur í nótt í því," sagði Elín. Ganga Vilborgar Örnu var í þágu Lífs styrktarfélags Kvennadeildar Landspítalans. Menn geta sett sig í spor Vilborgar með því að heita á hana í síma 908 1515 ( 1500 kr) eða með frjálsum framlögum á heimasíðunni www.lifsspor.is.
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Fleiri fréttir Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Sjá meira