"Maður fær að skapa sinn eigin heim" Sara McMahon skrifar 12. ágúst 2013 07:00 Hörður Ingason starfar sem tískuljósmyndari í Danmörku. Hann myndaði tískuþátt fyrir danska tískuritið Costume. Myndir/Hörður Ingason "
Þetta er mitt annað verkefni fyrir blaðið. Áður hafði ég unnið með dönskum stílista að myndaþætti. Ég var svo fenginn í þetta verkefni og það var bara skemmtileg tilviljun að við Þóra, sem starfar hjá Costume, erum bæði íslensk. Við mynduðum bara flíkur eftir danska hönnuði og verkefnið gekk mjög vel,"? segir ljósmyndarinn Hörður Ingason. Tískuþáttur eftir hann og Þóru Valdimarsdóttur stílista birtist í ágústhefti danska tískuritsins Costume. Hörður er búsettur í Kaupmannahöfn og starfar sem tískuljósmyndari. Hann stundaði áður ljósmyndanám í Viborg, en skólinn mun vera einn besti ljósmyndaskóli í Skandinavíu. Hörður dvaldi einnig um hríð í New York og var þá í læri hjá ljósmyndaranum Kenneth Willardt, sem hefur unnið mikið fyrir snyrtivörumerki á borð við L'Oréal og Maybelline.Úr costume Fatnaðurinn sem Hörður myndaði var eftir danska fatahönnuði.Hörður tekur að sér ýmis verkefni en segir tískuljósmyndun vera í uppáhaldi. "Mér þykir viðfangsefnin í tískuljósmyndun áhugaverð. Maður fær að skapa sinn eigin heim í kringum tökurnar og svo finnst mér mjög gaman að mynda fyrirsætur." Tískuiðnaðurinn í Kaupmannahöfn er að sögn Harðar lítill og því margir sem keppa um sömu bitana. "Þetta er pínu hark og það eru margir að reyna að koma sér á framfæri. En ef maður kemst inn í nokkur verkefni verður þetta auðveldara. Eða það vona ég í það minnsta," segir hann og hlær. Spurður út í framtíðaráform sín segist Hörður ekki vera á heimleið. "Draumurinn er að flytja til New York og starfa sem ljósmyndari. "En svo ræð ég ekki ferðinni einn. Ég bý með kærustu minni hér í Kaupmannahöfn og hún er lærður líftæknifræðingur."
Mest lesið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Sjá meira