Búnir að finna nýtt met fyrir Messi að slá Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2013 23:15 Lionel Messi Mynd/Nordic Photos/Getty
Knattspyrnutölfræðingar hafa nú fundið nýtt met fyrir Lionel Messi til að slá en argentínski snillingurinn hefur verið afar duglegur að safna að sér markametum síðustu misserin. 85 ára markamet er nú í hættu haldi Messi áfram á sömu braut út leiktíðina. Lionel Messi hefur skorað 33 mörk í 21 deildarleik til þessa á tímabilinu og er á góðri leið með að gera betur en á síðustu leiktíð þegar hann var með 50 mörk í 37 deildarleikjum sem er að sjálfsögðu markamet í spænsku deildinni. Markametið á einu tímabilinu í einu af bestu deildum Evrópu á hinsvegar Dixie Dean sem skoraði 60 mörk fyrir Everton tímabilið 1927-28. Dean var kominn með 33 mörk eftir 21 leik alveg eins og Messi í vetur. Messi hefur skorað 1,57 mörk að meðaltali í leik og haldi hann þessu meðalskori út tímabilið þá gerir það 59,7 mörk. Messi hefur tólf marka forskot á Cristiano Ronaldo í baráttunni um markakóngstitilinn á Spáni og hefur auk þess skorað mun fleiri mörk en markahæstu menn í hinum stóru deildunum í Evrópu. Zlatan Ibrahimovic hefur skoraði 19 mörk fyrir Paris Saint-Germain og er markahæstur í frönsku deildinni, Robin van Persie hefur skorað 18 mörk fyrir Manchester United og er markahæstur í ensku deildinni og þá er Edison Cavnai markahæstur á Ítalíu með 18 mörk fyrir Napoli.
Spænski boltinn Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Enski boltinn Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Fleiri fréttir Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Ánægð með að mæta Íslandi „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Sjá meira