Hægt á aðildarviðræðum við ESB Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. janúar 2013 10:29 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Hægt verður á aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í minnisblaði sem samþykkt var í ríkisstjórninni í morgun. Þetta er gert í ljósi þess að komandi mánuðir munu markast af undirbúningi undir alþingiskosningar sem fram fara í vor. Af þeim 33 málaflokkum sem samið er um hefur Ísland afhent 29 samningsafstöður, viðræður eru hafnar um 27 og lokið um 11. Í minnisblaðinu kemur fram að ekki verður unnið frekar við mótun samningsafstöðu Íslands í þeim fjórum köflum sem enn eru ófrágengnir. Þetta eru sjávarútvegskaflinn (sem er kafli 13), kaflar 3 og 4 um þjónustuviðskipti og staðfesturétt sem hafa tengingu yfir í sjávarútvegskaflana og landbúnaðarkaflinn (sem er kafli 11). Í minnisblaðinu kemur fram að samninganefnd Íslands og sérfræðingar muni halda áfram uppi samskiptum við ESB um þá sextán kafla sem hafa verið opnaðir og ekki hefur verið lokið við, án þess þó að kallað verði eftir frekari ákvörðunum framkvæmdar- eða löggjafarvalds. Utanríkisráðherra mun upplýsa framkvæmdastjórn ESB og formennskuríkið Írland með viðeigandi hætti um þennan umbúnað viðræðnanna.Hér má sjá yfirlýsingu frá ríkisstjórninni um málið.
Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Sjá meira