Innlent

Aukafjárframlög í augnsýn

Björn Zoëga
Björn Zoëga
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segist nú hafa umboð frá stjórnvöldum til að semja við hjúkrunarfræðinga spítalans. Slíkt mun kosta ríkissjóð hundruð milljóna króna. RÚV sagði frá þessu í gærkvöldi.

Rúmlega 250 hjúkrunarfræðingar sögðu upp á Landspítalanum í nóvember. Stjórnendur spítalans hafa sagt að aukafjárframlag þurfi frá ráðuneytinu til að hækka launin. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sagði á Alþingi í gær að aukaframlög væru til umræðu þótt engar tölur hefðu verið nefndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×