„Ég tala miklu betri dönsku en Henrik“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. nóvember 2013 00:01 „
Samningur minn við Lilleström rennur út í lok desember og ég er að horfa í kringum mig,“ segir knattspyrnumaðurinn Stefán Logi Magnússon. Markvörðurinn hefur verið í víking hjá Lilleström síðan sumarið 2009 en var í láni hjá Ull/Kisa í norsku b-deildinni í vetur. Stefán Logi æfði með KR-ingum á mánudaginn og stefnir á að gera það aftur á morgun. „Maður ber sterkar taugar til KR. Þeir vita hver ég er og hvað ég stend fyrir,“ segir Stefán Logi sem sló í gegn með Vesturbæjarliðinu árin 2007-2009. „Það var gaman að taka markmannsæfingu með Gumma Hreiðars. Svo talaði ég aðeins við Rúnar Kristinsson og hitti strákana,“ segir Stefán Logi sem skemmti sér vel. Hann segir þó að megi ekki lesa of mikið í að hann hafi kíkt á æfingu hjá liðinu. Hann hafi einnig mætt á æfingar hjá Stjörnunni í Garðabæ þar sem hann fær alltaf góðar viðtökur. Þeir Henrik Bödker, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, nái sérstaklega vel saman. „Ég tala reyndar miklu betri dönsku en Henrik,“ segir Stefán Logi og hlær. Hann bendir á að þeir deili skoðunum hvað við kemur þjálfunaraðferðum og leikmannamálum. Hugur Stefáns Loga stendur einnig til þjálfunar að ferlinum loknum. „Mig langar að spila í einhver ár í viðbót. Ég held að það verði nú niðurstaðan,“ segir markvörðurinn. Hann segist hafa fengið tilboð um aðstoðarþjálfarastöðu ytra og sömuleiðis hafi hann átt í viðræðum við félagslið bæði hér heima og erlendis. „Þetta er í biðstöðu eins og er. Ég verð að sjá hvað hentar best fyrir mig sem knattspyrnumann og fjölskylduna líka,“ segir Stefán Logi. Hann reiknar með að verða búinn að taka ákvörðun áður en árið er úti. -ktd
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Fleiri fréttir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Sjá meira