Lífið

Söng með fyrrum gítarleikara R.E.M.

Kristína Mekkin söng á tónleikum Peters Buck og félaga Tired Pony.
Kristína Mekkin söng á tónleikum Peters Buck og félaga Tired Pony.
Reykjavíkurmærin Kristína Mekkín Haraldsdóttir söng bakraddir á tónleikum ofurgrúppunnar Tired Pony í Barbican Centre í London fyrir skömmu.

Í hljómsveitinni eru meðal annarra Peter Buck, fyrrum gítarleikari R.E.M., tveir liðsmenn Snow Patrol, og trommari Belle & Sebastian. „Ég og einn af stofnendunum, Gary Lightbody úr Snow Patrol, eigum sameiginlegan kunningja. Þannig gerðist þetta,“ segir Kristina, spurð út í þátttöku sína í tónleikunum.

Áhorfendur voru um tvö þúsund talsins

Hin 22 ára Kristína flutti til London fyrir fimm mánuðum og er að búa til tónlist með vini sínum. Hún vonast til að fá að vinna aftur með Tired Pony þegar sveitin spilar aftur í London. „Þetta eru miklir fagmenn og allir mjög almennilegir. Það var engin tilgerð í kringum þá og manni leið aldrei eins og nýgræðingi.“

Hún viðurkennir að um mikla og góða reynslu sé að ræða fyrir sig sem upprennandi tónlistarkonu. „Já, reynsla og sambönd líka,“ segir Kristína, sem fékk heimboð til Los Angeles frá Peter Buck og eiginkonu hans.

Hún var ein af sex bakraddasöngkonum á tónleikunum. Leikkonurnar Kim Topper og Bronagh Gallager, sem lék í The Commitments, voru einnig á meðal þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.