Hleypur til styrktar endómetríósu Freyr Bjarnason skrifar 17. ágúst 2013 13:00 Kári Steinn Karlsson, Ester Ýr Jónsdóttir og Bjarki Jónsson ætla að hlaupa til styrktar Samtökum um endómetríósu. fréttablaðið/valli
Kári Steinn Karlsson ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 24. ágúst ásamt tveimur frændsystkinum sínum, þeim Ester Ýri og Bjarka Jónsbörnum. Þau þrjú ætla að hlaupa til styrktar Samtökum um endómetríósu en Ester Ýr hefur greinst með þennan arfgenga sjúkdóm, auk þess sem önnur frænka Kára Steins hefur einnig greinst með hann. „Ég var einfaldlega beðinn um þetta. Ég vissi ekki hvað þetta var, hafði aldrei heyrt um þetta áður en fannst þetta flott málefni,“ segir Kári Steinn, spurður hvers vegna hann ákvað að hlaupa fyrir samtökin. Hann keppti í maraþonhlaupi á Ólympíuleikunum í fyrra. „Ég held að almenningur viti ekkert svakalega mikið um þennan sjúkdóm. Ég get vonandi safnað einhverjum peningum fyrir þetta málefni og vakið athygli á því í leiðinni.“ Aðspurður segist Kári Steinn ætla að láta sér nægja að hlaupa hálfmaraþon í þetta skiptið en vonast til að hlaupa heilt Reykjavíkurmaraþon síðar. „Ég hef aldrei hlaupið heilt maraþon á Íslandi og bara hlaupið þrjú maraþon. Maður fer sparlega með þau því þau taka sinn toll af líkamanum.“ Ester Ýr ætlar að hlaupa tíu kílómetra og býst ekki við því að ná að halda í við frænda sinn. „Það liggur við að þetta sé í fyrsta sinn sem ég tek þátt í einhverju hlaupi. Mér finnst mjög mikilvægt að opna umræðuna um þennan sjúkdóm, sem er kannski oft svolítið feimnismál. Margir halda að þetta séu eingöngu slæmir túrverkir en þetta er svo miklu meira en það,“ segir hún. Til marks um það hefur Ester farið í þrjár skurðaðgerðir vegna endómetríósu og fjórar misheppnaðar glasameðferðir. „Markmiðið er að klára hlaupið. Ég yrði hrikalega ánægð með það.“ Bróðir hennar Bjarki tekur einnig þátt en hann hefur verið duglegur að vekja athygli á endómetríósu á Facebook að undanförnu. „Ég er mjög ánægð með að sjá að svona ungir strákar séu tilbúnir að vekja athygli á svona málefni,“ segir Ester um Bjarka og Kára Stein.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira