Ragnhildur Steinunn: Maður krossar í það minnsta fingur Sara McMahon skrifar 10. ágúst 2013 09:00 Heimildarmynd Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur, Hrafnhildur, á Nordisk Panorama kvikmyndahátíðinni. Mynd/Elena Sigtryggsson „
Það er frábært hvað myndin hefur fengið góð viðbrögð, bæði hér og víðar,“ segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir fjölmiðlakona. Heimildarmynd hennar, Hrafnhildur, keppir á kvikmyndahátíðinni Nordisk Panorama í lok næsta mánaðar. Flokkurinn sem mynd Ragnhildar Steinunnar keppir í er ætlaður ungum og upprennandi leikstjórum og kallast New Nordic Voices. Tvær aðrar íslenskar myndir keppa í flokknum: Ástarsaga eftir Ásu Hjörleifsdóttur og The Last Thing eftir Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur. Spurð hvort hún sé vongóð um sigur segir Ragnhildur Steinunn hlæjandi: „Maður krossar í það minnsta fingur. Ég held við séum um fimmtán, tuttugu sem keppum í flokknum, þannig að við erum mörg. En það er mikill heiður fyrir ungan og óreyndan leikstjóra að komast inn á hátíðina, hvað þá að komast í keppnisflokk. Maður veit líka að erlendar sjónvarpsstöðvar fylgjast náið með hátíðinni og ég vona bara að myndin fari sem víðast.“Reynslan frá Rúv nýtist vel Ragnhildi Steinunni þykir leikstjórnarstarfið áhugavert og myndi gjarnan vilja sinna því enn frekar í framtíðinni. „Mér fannst rosalega gaman að gera Hrafnhildi, þá sérstaklega af því ég gerði hana nánast sjálf frá A til Ö. Þó ég hafi ekkert lært í kvikmyndagerð þá hef ég fengist við mjög ólíka dagskrárgerð á RÚV og sú reynsla nýttist vel í þessu ferli.“ Fjölmiðlakonan á von á sínu öðru barni eftir tvær vikur og hyggst nýta barneignafrí sitt í eftirvinnslu nýrrar heimildarmyndar sem hún vinnur að í samstarfi við Sjónvarpið og Egil Eðvarðsson. „Við náum vonandi að klára að klippa myndina í fæðingarorlofinu. Ég nýti þau í þetta, ég kláraði Hrafnhildi í hinu orlofinu.“ Aðspurð hvort hún ætli að taka þátt í fagnaðarlátunum er fylgja Gleðigöngunni sem fram fer í dag segir hún: „Ég vil gjarnan taka fullan þátt, en það verður að ráðast af samdráttarverkjum hversu mikinn þátt ég tek í hátíðahöldunum í ár,“ segir hún að lokum.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira