Aftur á Þjóðhátíð Elín Albertsdóttir skrifar 31. júlí 2013 13:12 Tómas er tónlistarstjóri á litlum bar sem heitir Ob-la-dí en þar eru tónleikar allar helgar. Þessa helgina verður hins vegar troðið upp í Eyjum og í Húsdýragarðinum. mynd/arnþór
Stuðmenn fagna 30 ára afmæli kvikmyndarinnar Með allt á hreinu á tónleikum á Þjóðhátíð í Eyjum um helgina. Þessi vinsæla bíómynd var einmitt að hluta til kvikmynduð þar. Stuðmenn eru ekki ókunnugir Þjóðhátíð í Eyjum þar sem þeir tróðu upp fyrr á árum. Nú verður leikurinn endurtekinn en Tómas Tómasson, bassaleikari hljómsveitarinnar, segir að tónleikarnir verði á föstudagskvöldið. „Þeir verða svipaðir og í Hörpu í vetur. Áður fyrr lékum við öll kvöldin í Eyjum en nú verðum við aðeins þetta eina kvöld,“ segir hann. „Hljómsveitin hafði verið í langri pásu þegar tónleikarnir voru haldnir í Hörpu en nú eru allir í fínu formi og áherslan er á tónlistina úr myndinni Með allt á hreinu,“ segir Tómas. Það er ljóst að gestir ættu að geta sungið með hljómsveitinni. Flestir kunna smellina sem einkenndu bíómyndina, eins og Einsa kalda. Tómas segist vonast til að veðrið verði gott um helgina. „Síðast þegar við vorum á Þjóðhátíð rigndi óskaplega en þá spiluðum við á gamla sviðinu. Ég hlakka mikið til að troða upp á nýju og glæsilegu sviði. Þar er miklu betri aðstaða og útsýni fyrir áhorfendur,“ segir Tómas sem segist aldrei hafa farið á Þjóðhátíð til að skemmta sér, aðeins öðrum. „Ég fór einu sinni á útihátíð í Húsafelli. Þá var ég 14 ára og hlustaði á Hljóma. Fljótlega eftir það fór ég að spila um verslunarmannahelgar. Það voru eingöngu vinnuferðir.“ Stuðmenn léku í mörg ár í Atlavík um verslunarmannahelgina. „Þar var alltaf mikill mannfjöldi sem kom alls staðar að af landinu,“ segir Tómas. Margir muna eftir því þegar bítillinn Ringo Starr mætti þangað árið 1984 á vegum hljómsveitarinnar og Tómas minnist þess með gleði. „Það var eiginlega tilviljun að hann var ekkert að gera þessa helgi og gat komist til að spila með okkur.“ Á sunnudaginn mæta Stuðmenn aftur til leiks í Húsdýragarðinum en fimm ár eru síðan þeir héldu tónleika þar síðast. „Tónleikarnir hefjast kl. 20 og eru fyrir alla fjölskylduna. Síðast mættu um tíu þúsund manns,“ segir Tómas sem er tónlistarstjóri hjá barnum Ob-la-dí á Frakkastíg 8. „Við höfum haldið litla þjóðhátíð á þessum bar undanfarin ár en þar eru haldnir tónleikar um hverja helgi. Eigandi staðarins, Davíð Steingrímsson, er mesti aðdáandi Bítlanna fyrr og síðar. Enginn Íslendingur hefur farið oftar á tónleika með Paul McCartney.“
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Sjá meira