Á persónulegum nótum 20. júlí 2013 14:00 "Stemningin á að vera svipuð því og þegar farið er með vinum og fjölskyldu út á land og ætti því að gefa raunsannari mynd af landi og þjóð,“ segir Þorbjörn. Frá vinstri: Þorbjörn Sigurbjörnsson, Árni Georgsson og Sigurður Eggertsson. MYND/GVA
Framhaldsskólakennararnir Þorbjörn Sigurbjörnsson og Sigurður Eggertsson eiga alla jafna langt og gott frí á sumrin. Í ár ákváðu þeir að nota það til að koma á fót ferðaþjónustu sem hefur fengið nafnið Iceland Day Trips. Þeir náðu sér í meiraprófsréttindi, keyptu litla skutlu og rúnta nú með litla hópa ferðamanna í dagstúra og styttri ferðir. Þá bjóða þeir upp á persónulega innkaupaþjónustu eða svokallaðan „personal shopper“ en slík þjónusta getur komið sér vel fyrir ferðamenn sem vilja rata beint í réttu búðirnar og hafa lítinn tíma til stefnu.Vinaleg stemning „Hugmyndin er að bjóða upp á persónulega þjónustu. Við viljum vera sveigjanlegir og stoppa þar sem fólk vill. Stemningin á að vera svipuð því og þegar farið er með vinum og fjölskyldu út á land og ætti því að gefa raunsannari mynd af landi og þjóð en gengur og gerist,“ segir Þorbjörn. „Við förum hefðbundna rúnta eins og Gullna hringinn og á Reykjanesið en brjótum þá upp með alls kyns tvisti. Stoppum til að mynda á bóndabæjum, í hellum og við virkjanir. Þá er hægt að óska eftir sérsniðnum ferðum og getum við til að mynda farið með fólk í miðnæturgolf eða boðið upp á leiðsögn um næturlífið í miðbæ Reykjavíkur svo dæmi séu nefnd.“Vísar veginn Þorbjörn og Sigurður hafa umsjón með ferðalögunum en fengu barítónsöngvarann og tískuáhugamanninn Árna Georgsson til að sjá um innkaupaþjónustuna. „Hann fylgist gríðarlega vel með tískunni og veit upp á hár hvaða tískustraumar eru ríkjandi hverju sinni. Hann skoðar og pælir og veit hvar allt fæst. Þjónustan virkar þannig að hann setur sig í samband við fólkið og kannar hverjar áherslurnar eru. Hann kynnir sér stíl þess og kannar hvort fólk sé á höttunum eftir íslenskri hönnun, skartgripum eða jafnvel loðfeld og rúntar svo með það á rétta staði,“ útskýrir Þorbjörn. Hann segir marga ferðamenn halda til á Laugaveginum en telur þá fara á mis við alls kyns hliðar- og sérverslanir. „Þar kemur Árni sterkur inn, auk þess sem þjónusta sem þessi hefur reynst þeim sem hafa lítinn tíma en vilja engu að síður gera góð kaup vel.“ Þorbjörn segir þá félaga stefna á að halda starfseminni áfram meðfram kennarastörfum í vetur. „Já, við ætlum í norðurljósaslaginn með hinum og komum til að bjóða upp á bæði kvöld- og helgarferðir.”
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Sjá meira