Eyjamenn veiða lunda eftir bann í tvö sumur Garðar Örn Úlfarsson skrifar 19. júlí 2013 06:45 Georg Arnarson elur lundastofninn gríðarsterkan en kveðst uggandi yfir nýliðuninni. Mynd/Óskar P. Friðriksson.
Meirihlutinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í gær að heimila lundaveiðar í fimm daga frá og með deginum í dag. Náttúrustofa Suðurlands mælti gegn veiðunum sem legið hafa niðri í tvö ár vegna lélegrar nýliðunar í lundastofninum. Lundaveiðar hefjast í Vestmannaeyjum í dag eftir tveggja ára hlé. Bæjarstjórnin samþykkti í gær að veiða megi í fimm daga frá og með deginum í dag. Veiðitímabilið var 55 dagar á árum áður. Georg Arnarsson, sem veitt hefur lunda í 35 ár, fagnar ákvörðuninni þótt hann segist helst viljað hafa veiðidaga í ágúst líka. Algjör forrréttindi séu að geta setið úti í náttúrunni og háfað sér nokkra fugla í soðið. „Ég heyri á öðrum veiðmönnum að Eyjamenn eru þegar byrjaðir að hringja og kvabba um hvort þeir geti ekki reddað nokkrum fuglum. Lundinn er ekki bara eign þeirra sem veiða hann og ég hef fyrir mitt leyti sagt við fólk að ég gefi því kannski smakk ef það kemur í tjaldið hjá mér á þjóðhátíð,“ segir Georg.Kristín Jóhannsdóttir Harðar umræður urðu um málið á bæjarstjórnarfundinum. Bæjarfulltrúar V-lista kváðust harma ákvörðun meirihluta sjálfstæðismanna. Við Fréttablaðið segist Kristín Jóhannsdóttir, úr V-listanum, treysta mati sérfræðinga Náttúrustofu Suðurlands og margra annarra sérfróðra sem telji viðkomu lundastofnsins of litla til þess að tímabært sé að taka veiðarnar upp. Á bæjarstjórnarfundinum benti hún á að hægt væri að halda í hefðir með því að veiða lundann en merkja hann síðan og sleppa. Að sögn Kristínar bera þeir sem mæla með veiðunum því að lundaveiðimenn muni taka tilliti til stöðunnar og gæta hófs. „Það á auðvitað við um marga þeirra en ég hef samt áhyggjur að það séu ekki allir jafn ábyrgir. Mér finnst í góðu lagi að menn borði eitthvað annað en lunda á þjóðhátíð,“ segir Kristín. Eins og bæjarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks er Georg ekki sammála mati Náttúrstofu Suðurlands á stöðu lundastofnsins. Mikið sé af fugli. „En þó að stofninn sé gríðarlega sterkur er maður uggandi yfir hvernig nýliðunin hefur verið í pysjunni. Ég ætla að skreppa og ná mér í soðið en bara ef ég sé að það er ungfugl og gott flug og ástandið í lagi. Ef það er lélegt ástand þá fer ég ekki í veiði,“ segir Georg Arnarson.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bað um myndir af kynfærum tíu ára stúlku Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Sjá meira