Helmingi færri ungar konur í fóstureyðingu Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. júlí 2013 09:00 Helga Sól Ólafsdóttir, félagsráðgjafi, segir ástæðuna fyrir fækkun fóstureyðinga í yngsta aldursflokkinum að miklu leyti samfélagslega en þakkar einnig aukinni fræðslu og aðgangi að getnaðarvörnum. FRETTABLADID/DANÍEL
Fóstureyðingum hefur fækkað talsvert hjá yngsta aldurshópi kvenna á frjósemisaldri á síðastliðnum áratugi. Þetta kemur fram í tölum útgefnum af landlæknisembættinu í byrjun mánaðar. Þannig voru framkvæmdar alls 257 fóstureyðingar í þessum aldurshópi árið 2000 en hafði fækkað niður í 153 aðgerðir á síðasta ári. Helga Sól Ólafsdóttir, félagsráðgjafi á Landspítala Íslands, segir að það væri gott ef hægt væri að minnka fjölda fóstureyðinga enn frekar en leggur áherslu á að þessi valmöguleiki verði alltaf að vera til staðar. Grundvöllurinn fyrir þessum lækkandi tölum er sú að þungunum hefur almennt fækkað í þessum hópi. Að hennar mati eru margar ástæður fyrir þessari þróun. „Það sem skiptir máli í þessu er í fyrsta lagi fræðslan. Markvisst hefur verið farið í grunnskóla og framhaldsskóla. Í grunnskólum er bæði rætt við foreldra og táningana sjálfa og í framhaldsskólum hefur Ástráður komið sterkur inn.“ Ástráður er forvarnarstarf læknanema gegn kynsjúkdómum og ótímabærum þungunum. „Þetta er hálfgerð jafningjafræðsla, það er mun þægilegra fyrir krakkana að tala við einhvern sem er nær þeim í aldri.“Neyðarpillan fækkaði fóstureyðingum Helga segir einnig að aðgengi að getnaðarvörnum hafi verið aukið og spili það inn í. „Neyðarpillan kom í kringum 1998, hana er hægt að fá án lyfseðils síðan árið 2006 í apóteki en hún er of dýr. Mér finnst, og okkur öllum í þessum geira, að getnaðarvarnir eigi að vera ókeypis fyrir alla undir 20 ára. Stundum hefur verið talað um 18 ára aldur en það er algjört lágmark.“ Flestar fóstureyðingar áttu sér stað árið 2000, þrátt fyrir að neyðarpillan hafi þá verið komin fram á sjónarsviðið. Þetta segir Helga samfélagstengt, að það hafi nánast verið í tísku að eignast barn sem var fætt árið 2000. Þá kemur að þriðju ástæðunni.Breytt viðhorf til ungra mæðra „Samfélagið hefur breyst.“ Önnur viðhorf ríkja gagnvart því að vera ung og ómenntuð einstæð móðir. „Það er ákveðin hætta á að þú lendir í fátæktargildrunni. Fólk vill geta boðið barninu sínu það besta, vera búin að mennta sig og koma sér fyrir.“ Þessu tengist einnig minnkandi áfengisneysla þessa yngsta hóps. „Áfengisneyslu fylgir kæruleysi og öll slík áhættuhegðun eykur líkurnar á ótímabærri þungun.“ Hún segir allar forvarnir hafa áhrif á heilbrigðan lífstíl. „Um leið og krakkarnir fara að hugsa um framtíðina þá taka þau ekki áhættuna.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira