Leita falinna handrita frá musterisriddurum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. júlí 2013 11:45 Leiðangursmenn hafa þegar kannað nokkurn hluta hvammsins í Skipholtskrók með rafsjá og halda leitinni áfram nú í júlí. Mynd/Gopfrettir.com „
Það eru nógu áhugaverðar vísbendingar til að við séum reiðubúnir að leggja þetta á okkur,“ segir Þórarinn Þórarinsson arkitekt og liðsmaður hóps sem enn leitar dýrgripa frá miðöldum í Skipholtskrók á Hrunamannaafrétti. Leitin er byggð á vísbendingum sem einn leiðangursmanna, Ítalinn Giancarlo Gianazza, les úr kveðskap Dantes og málverkum endurreisnarmálaranna da Vincis, Botticellis og Rafaels. Mögulegt sé að musterisriddarar hafi á þrettándu öld komið undan til Íslands mikilvægum handritum úr frumkristni sem páfastóli hafa þótt stafa ógn af. Eftirgrennslanin í Skipholtskrók hófst sumarið 2004. Að sögn Þórarins mun hópur fjögurra Ítala og fjögurra Íslendinga halda leitinni þar áfram með rafsjá í nokkra daga um miðjan júlí. „Ef okkur líst á eitthvað þá gröfum við holu. Við höfum ekkert fundið,“ segir Þórarinn um árangurinn fram til þessa. Að mati Þórarins og félaga hlýtur Dante að hafa komið í Skipholtskrók við ánna Jökulfall og dvalið þar. Lýsingar skáldsins í Hinum guðdómlega gleðileik af staðháttum séu svo ótrúlega nákvæmar. „Þetta er stór hvammur sem er alveg eins og hringleikahús sem Dante lýsir. Það er spurning hvar í hringnum þetta er – ef eitthvað er,“ segir Þórarinn sem kveður líklegast að um einhvers konar rit sér að ræða. Þó sé langt í frá öruggt að nokkur hlutur muni finnast. Ljóð Dantes geti allt eins verið um leit mannsins að andlegum þroska. „Viska í einhverju formi er það eina sem hugsandi menn hafa talið þess virði að koma undan alla leið hingað,“ telur Þórarinn. „Það var viskan sem menn vildu feiga. Illviljuðum og gráðugum mönnum á öllum tímum er meinilla við sannindi.“
Mest lesið Lögreglan leitar að Cezary Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Erlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Innlent Aflvana togari hættulega nálægt landi Innlent Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Innlent Fleiri fréttir Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Sjá meira