Innlent

Sá stolnu verkfærin sín til sölu á Bland.is

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Framkvæmdastjóri bland.is segir starfsfólk sitt gera allt sem í valdi þess standi til að sporna við þýfissölu en að það þurfi að starfa innan ramma laganna. Fréttablaðið/Einar
Framkvæmdastjóri bland.is segir starfsfólk sitt gera allt sem í valdi þess standi til að sporna við þýfissölu en að það þurfi að starfa innan ramma laganna. Fréttablaðið/Einar
Nokkuð hefur borið á því undanfarið að óprúttnir aðilar noti söluvefi, á borð við bland.is, til þess að selja illa fengna hluti og koma þeim í verð.

Í samtali við Fréttablaðið lýsti kona, sem vildi ekki láta nafns síns getið, áhyggjum sínum yfir málinu, en hún og maðurinn hennar urðu fyrir því að brotist var inn í verkfærageymslu þeirra og ýmsu stolið. Þar voru dýr verkfæri og fáir eiga eins. Þannig fór ekki á milli mála þegar konan sá hluta verkfæranna til sölu á söluvefnum bland.is að um þeirra eigur væri að ræða.

Þegar þau leituðu til lögreglu með málið var þeim sagt að bland.is gæfi ekkert upp um notandann og að þau þyrftu dómsúrskurð til þess að nálgast slíkar upplýsingar. Slíkt getur tekið langan tíma.

Notandinn hafði stofnað reikning á bland.is stuttu áður en auglýsingin með þýfinu hafði verið sett inn. Þannig þurftu hjónin sem um ræðir að taka málin í sínar hendur.

Þau settu sig í samband við þann sem seldi þýfið í gegnum bland.is og gerðu sér upp áhuga á þvi að kaupa umrædd verkfæri. Þau mældu sér við mót við hann, en það var svo lögreglan sem mætti á svæðið í stað þeirra.

Jón H.B. Snorrason
Jón H. B. Snorrason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir þetta þekkt vandamál. „Við höfum oft þurft að snúa okkur til þeirra sem eru í forsvari fyrir söluvefi á landinu. Við leggjum áherslu á það við þessa söluvefi að ef grunur leikur á að um sé að ræða þýfi geti þeir ekki ábyrgðarlaust haldið áfram að hýsa söluna. Þá yrðu þeir í framhaldinu sekir um hylmingu,“ segir Jón.

„Upp til hópa held ég að það sé heiðarlegt fólk sem stendur að baki slíkum síðum og að jafnaði eru menn samvinnuþýðir, en það getur ekki komist undan þessari ábyrgð. Við höfum áður þurft að leita til dómstóla til fá úrskurð um eitt og annað vegna söluvefja. Slíkir úrskurðir kosta mikla vinnu af hálfu hins opinbera,“ bætir Jón við.

Skorri rafn rafnsson, framkvæmdastjóri bland.is
Skorri Rafn Rafnsson, framkvæmdastjóri bland.is, segir starfsfólk sitt gera allt í sínu valdi til að koma í veg fyrir að þýfi sé selt á söluvefnum. „Svona mál eru sjaldgæf, en við erum náttúrlega með 230 þúsund notendur. Við berjumst gegn sviksamlegu athæfi. Hins vegar erum við skyldug til að virða þau lög og þær reglur landsins sem gilda um persónuvernd,“ segir Skorri.

„Við deilum ekki upplýsingum um notendur okkar nema í skjóli laga, nánar tiltekið laga um persónuvernd, dómsúrskurðar og neyðarréttar,“ bætir Skorri við. „Við innleiddum auðkenningarskyldu til þess að sporna við því að ólöglegt athæfi þrifist á vefnum. Það hefur skilað töluverðum árangri,“ segir Skorri




Fleiri fréttir

Sjá meira


×