Það er kominn 19. júní Kristín Ástgeirsdóttir skrifar 19. júní 2013 06:00 Í dag minnumst við þess í 98. sinn að konur, sem orðnar voru 40 ára og eldri, fengu kosningarétt til Alþingis. Lengi vel var 19. júní nýttur til að safna fé fyrir Landspítalasjóðinn því breiðfylking íslenskra kvenna ákvað árið 1915 að „þakka fyrir“ kosningaréttinn með því að hefja söfnun fjár fyrir Landspítala. Þær vildu knýja stjórnvöld til að taka á heilbrigðismálum þjóðarinnar sem voru í miklum ólestri. Þessi ákvörðun kvenna var í fullu samræmi við þá ríkjandi hugmyndafræði að konur ættu það erindi helst út á opinbera sviðið að láta gott af sér leiða, beita sér í sveitarstjórnum og á þingi í þágu kvenna, barna og þeirra hópa sem höllum stóðu fæti. Slíkar hugmyndir um hlutverk kvenna hafa reynst ótrúlega lífseigar eins og dæmin sanna.Staðalmyndir Landspítalinn reis ekki síst vegna þess að „fulltrúi kvenna“ á þingi, Ingibjörg H. Bjarnason, beitti sér af alefli fyrir byggingu hans. Frá því að hún sat ein kvenna í sölum Alþingis á árunum 1922-1930 er mikið vatn til sjávar runnið. Konum fjölgaði löturhægt í sveitarstjórnum og á þingi þar til hópar kvenna gripu til sinna ráða og buðu fram kvennalista rétt eins og konur gerðu fyrr á öldinni. Kvennahreyfingar beittu sér löngum fyrir launajafnrétti (sem ekki hefur náðst enn), jöfnum tækifærum til menntunar, leikskólum og samfelldum skóladegi, frjálsum fóstureyðingum og ýmsum fleiri málum sem flest eru komin í nokkuð gott horf. Á níunda áratug síðustu aldar komst ofbeldi gegn konum á dagskrá og síðar börnum, viðfangsefni sem við glímum enn við. Það var sama sagan, konur tóku sig saman, stofnuðu samtök til að reka kvennaathvarf og síðar Stígamót og fleiri félög sem vinna með þolendum kynferðisofbeldis. Nú beinast sjónir ekki síst að þeim staðalmyndum kynjanna sem viðhalda kynjamisrétti og hefta einstaklingana bæði í einkalífi og atvinnu. Úti í Evrópu er misrétti meðal lífeyrisþega komið á dagskrá, mál sem við þurfum að sinna hér á landi. Grasrótin og samstaða innan hennar hefur leikið langstærsta hlutverkið við að koma okkur í fremstu röð hvað varðar jafnrétti kynjanna í heiminum. Samvinna íslenskra kvennahreyfinga er einstök á heimsvísu og það eru fyrst og fremst aðgerðir þeirra í um það bil 140 ár sem hafa ýtt okkur áfram. Að sjálfsögðu eiga stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins sinn þátt í þeirri þróun sem hér hefur orðið. Sumt hefur orðið til hér heima, t.d. fæðingarorlof feðra sem lengi var alveg einstakt á heimsvísu, en annað er til komið vegna Kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna og samþykkta kvennaráðstefna SÞ, ekki síst Pekingsáttmálans og meðfylgjandi framkvæmdaáætlunar frá 1995, en allt þetta hefur Ísland staðfest. Mér finnst ástæða til að minna á alþjóðlegar skuldbindingar okkar í kjölfar umræðna sem orðið hafa um nefndaskipan á Alþingi sem stjórnarflokkarnir hafa reyndar blessunarlega brugðist við.Sérkennileg rök Í hvert sinn sem stjórnvöld eru gagnrýnd vegna jafnréttismála eða kröfur koma upp um nýjar aðgerðir heyrast raddir um að jafnréttislögin séu óþörf (og til óþurftar) og þar með Jafnréttisstofa, lögin veiti forréttindi og séu jafnvel brot á stjórnarskránni. Þetta eru sérkennileg rök en þau sýna að mannréttindabarátta kvenna á enn í vök að verjast og eins gott að halda vöku sinni. Það að konum (og körlum) sé tryggður ákveðinn hlutur með lögum, t.d. í stjórnum fyrirtækja, er túlkað sem forréttindi. Jafnréttið hljóti að koma af sjálfu sér t.d. með aukinni menntun kvenna af því að menn hljóti að velja þá hæfustu. Það er bara ekki þannig. Konur eru löngu komnar langt fram úr körlum hvað varðar menntun en hún skilar sér hvorki í jöfnum launum né jöfnum völdum. Hefðir kynjakerfisins lifa enn góðu lífi. Þess vegna kveður Kvennasáttmáli SÞ á um (4. gr.) að það sem kallað hefur verð sértækar aðgerðir (bráðabrigðaráðstafanir heitir það í sáttmálanum) teljist ekki mismunun. Þess vegna ber íslenskum stjórnvöldum samkvæmt samþykktinni frá kvennaráðstefnu SÞ í Naíróbí 1985 (125 gr. til 131. gr.) að tryggja skipulega starfsemi til að koma á kynjajafnrétti á landsvísu „með nægjanlegar tekjulindir, aðstöðu og völd á æðsta þrepi stjórnsýslunnar“. Þess vegna er heill kafli (H kaflinn um Institutional mechanisms) í framkvæmdaáætlun SÞ frá 1995 um margvíslegar skyldur stjórnvalda hvað varðar aðgerðir til að bæta stöðu kvenna og tryggja kynjajafnrétti. Á þessum degi þegar við minnumst baráttu gömlu kvenréttindakvennanna sem ruddu brautina er vert að hvetja þingmenn og reyndar alla landsmenn til að kynna sér og halda í heiðri alþjóðlegar skuldbindingar okkar. Við erum hluti af samfélagi þjóða og eigum að vera í fremstu röð við að tryggja mannréttindi bæði kvenna og karla. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Narsissismi í hnotskurn Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir Skoðun Palestína í Eurovision Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum – nærsamfélaginu sem heimssamfélaginu Hólmar Hólm Skoðun Heimur skorts eða gnægða? Þorvaldur Víðisson Skoðun Hversu lítill fiskur yrðum við? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi Þórir Garðarsson Skoðun Þjóðin vill eitt, Kristrún annað Ole Anton Bieltvedt Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. Skoðun Smábátar eru framtíðin, segir David Attenborough Kjartan Sveinsson Skoðun Vígvellir barna eru víða Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Heimur skorts eða gnægða? Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Vígvellir barna eru víða Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Narsissismi í hnotskurn Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum – nærsamfélaginu sem heimssamfélaginu Hólmar Hólm skrifar Skoðun Palestína í Eurovision Sigurður Loftur Thorlacius skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hversu lítill fiskur yrðum við? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðin vill eitt, Kristrún annað Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til! Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Þriðji kafli: Skálmöld Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. skrifar Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Uppiskroppa með umræðuefni í málþófi? Talið um Gaza! Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Kærleikurinn pikkaði í mig Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gigt er ekki bara sjúkdómur fullorðinna – Gigtarfélagið heldur opið hús til að fræða og styðja alla aldurshópa Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Friðun Grafarvogs Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Torfærur, hossur og hristingar! Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar Skoðun NÓG ER NÓG – Heilbrigðiskerfið er í neyðarástandi Ásthildur Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Við munum aldrei fela okkur aftur Kári Garðarsson skrifar Skoðun Er Kópavogsbær vel rekinn? Bergljót Kristinsdóttir skrifar Skoðun Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Um sjónarhorn og sannleika Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við? Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Málþóf og/eða lýðræði? Elín Íris Fanndal skrifar Skoðun Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar? Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Ísafjarðarbær í Bestu deild Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð í beinni Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Sjá meira
Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum – nærsamfélaginu sem heimssamfélaginu Hólmar Hólm Skoðun
Skoðun Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum – nærsamfélaginu sem heimssamfélaginu Hólmar Hólm skrifar
Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson skrifar
Skoðun Gigt er ekki bara sjúkdómur fullorðinna – Gigtarfélagið heldur opið hús til að fræða og styðja alla aldurshópa Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum – nærsamfélaginu sem heimssamfélaginu Hólmar Hólm Skoðun