Skoðun

Opið bréf til Björns Zoëga og framkvæmdastjórnar LSH

Það hefur ekki farið framhjá neinum að álag á Landspítalanum hefur aukist til muna sl. ár og heldur bara áfram að aukast án þess að í sjónmáli sé breyting þar á. Lyflækningasvið Landspítala er stærsta sviðið með miklu sjúklingaflæði. Þar er daglegt brauð að ekki finnist pláss fyrir sjúklinga sem leggja á inn og er því oft gripið til þess að leggja þá á ganga og þeim sinnt þar fárveikum. Það er orðið svo að álagið er mikið allan sólarhringinn, á vöktum sem í dagvinnu.

Læknateymi á sjúkradeild skv. skilgreiningunni samanstendur af sérfræðingi, deildarlækni, aðstoðarlækni og læknanemum. Hins vegar er það orðið normið að einungis sé einn almennur læknir (annaðhvort aðstoðarlæknir eða deildarlæknir, eða jafnvel læknastúdent í aðstoðarlæknisstöðu) ásamt sérfræðingi starfandi á teymi á hverjum tíma. Þýðir það að sú vinna sem áður deildist á 3-4 lækna leggst nú á 1-2 lækna. Þar fyrir utan hefur stærð teyma aukist, meðaltal var ekki fyrir alls löngu 12-14 sjúklingar á teymi en er nú orðið 14-18 sjúklingar að meðaltali. Þegar frádregnir eru þeir sjúklingar sem eru í bið eftir öðrum úrlausnum er oftar en ekki fárveikt fólk, sem þarf mikla umönnun og tíma.

Því má ekki gleyma að aðstoðarlæknar eru í námsstöðu á LSH, spítalinn er jú háskólasjúkrahús. Hafa þeir lokið 6 ára háskólanámi og er tilgangur kandídatsársins að hljóta grunnþjálfun og kennslu í því hvað er að vinna sem læknir. Þeir eru mikilvægir, sérstaklega í ljósi ofangreinds, þ.e. vaxandi álags og manneklu. Þeir eru að stíga sín fyrstu spor á ferlinum sem læknar og eiga því að geta leitað til sér reyndari deildarlæknis eða sérfræðings og fundið fyrir stuðningi í starfi, svokölluðu „backup“, sem því miður hefur verið ábótavant sl. ár.

Slæm þróun

Deildarlæknar hafa lokið 6 ára háskólanámi og kandídatsári og eru því að byrja sitt sérnám, þeir hafa allt frá 1-4 ára starfsreynslu að meðaltali. Á lyflækningasviði, sem og fleiri sviðum LSH, er starfrækt framhaldsmenntunarprógramm í almennum lyflækningum þar sem tilgangurinn er að veita góðan grunn í öllum sérgreinum sviðsins áður en haldið er til frekari sérhæfingar. Um er að ræða 3ja ára prógramm þar sem deildarlæknar flakka milli sérgreina og sinna þar teymisvinnu með þeim tilgangi að hljóta grunnmenntun í þeirri sérgrein. Því lengra sem líður á prógrammið er ætlast til meiri ábyrgðar af deildarlæknum, er ætlast til að þeir vaxi í starfi, hins vegar er staðan svo að vinnudagurinn gengur út á reddingar og hlaup, þannig að lítill tími er afgangs til lærdóms. Þar fyrir utan má nefna að ætlast er til að deildarlæknar sinni rannsóknarvinnu, sem er að mestu sinnt í frítíma.

Léleg vinnuaðstaða, lítill tími til kennslu ásamt miklu vinnuálagi – allt veldur þetta því að aðstoðarlæknar hafa upp á síðkastið í minni mæli sótt um vinnu á lyflækningasviði Landspítala. Þetta er slæm þróun, þar sem almennir læknar eru sérfræðingar framtíðarinnar og mikilvægur hlekkur í starfi LSH.

Þykir ljóst að framkvæmdastjórn LSH verður að grípa til aðgerða til að bæta hag almennra lækna og sýna í verki virðingu sína fyrir sér yngri kollegum og þeirri miklu vinnu sem þeir framkvæma til að halda Lyflækningasviði LSH gangandi.

Deildarlæknar lyflækningasviðs eru nú sem endranær viljugir til samvinnu til úrbóta á sviðinu. Þykir okkur leitt að forstjóri LSH virðist ekki sjá hversu mikilvægur starfskraftur almennir læknar eru, sérstaklega í ljósi þess að eitt sinn var hann sjálfur almennur læknir að stíga sín fyrstu spor, vonandi með nægilegum stuðningi eldri og reyndari kollega.

Ingibjörg Kristjánsdóttir

Sara Bjarney Jónsdóttir

Bjarki Þór Alexandersson

Sara S. Jónsdóttir

Össur Ingi Emilsson

Margrét Ólafía Tómasdóttir

Jóhanna Hildur Jónsdóttir

Sigríður Birna Elíasdóttir

Hrönn Ólafsdóttir

Margrét Làra Jónsdóttir

Þórir Már  Björgúlfsson

Hrafnkell Stefánsson

deildarlæknar Lyflækningasvið







 




Skoðun

Sjá meira


×