Bættar samgöngur gætu aukið vinsældir Breiðholts Sunna Valgerðardóttir skrifar 12. júní 2013 08:00 Formaður Félags fasteignasala segir bættar almenningssamgöngur eitt veigamesta atriðið til að gera Breiðholt að vinsælla hverfi. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
Fasteignaverð í Breiðholti er með því lægsta á höfuðborgarsvæðinu. Framboð á íbúðum þar er mikið og fjarlægð frá miðju borgarinnar töluverð. Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, segir að bættar almenningssamgöngur væru veigamikið atriði til að auka áhuga fólks á íbúðarkaupum í Breiðholtinu. „Ef fólk fær ódýrari og mun skjótari almenningssamgöngur hefði það áhrif á að það sæi sér hag í að búa þarna,“ segir hún. „Ég tel einnig að vinsældir hverfisins fari mikið eftir því hvernig borgaryfirvöldum tekst til við að gera hverfið aðlaðandi og gott fyrir þennan mikla íbúafjölda.“ Hún undirstrikar þó að það sé engin leið að spá fyrir um hvernig svæðið muni þróast. „Hverfið er á fallegum stað og Breiðhyltingar búa yfir og njóta mikilla lífsgæða eins og útivistarsvæða og náttúrufegurðar,“ segir hún og bendir einnig á að framboð á íbúðum í hverfum 111 og 109 hafi verið mikið og það lækki sjálfkrafa fasteignaverð. Svo megi ekki gleyma því heimslögmáli að eftir því sem fjær dregur miðju stórborga, þeim mun lægra sé fasteignaverðið. Breiðholt var óvinsælasta hverfi borgarinnar árið 2007 og þar hefur ekki orðið breyting á þar sem hlutfallslega kjósa fæstir íbúar Reykjavíkur að búa í Breiðholti miðað við önnur hverfi og af rúmlega 20.000 íbúum Breiðholts kjósa einungis 45 prósent að búa þar ef þeir fengju að velja. Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 sem unnin var fyrir rannsóknarhópinn Betri borgarbragur og umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur og notuð var til hliðsjónar við framkvæmd aðalskipulags borgarinnar og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 fyrir helgi.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Sjá meira