Íslenski boltinn

Held ég sé enginn harðstjóri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
kominn í brúna Ríkharður mun reyna fyrir sér í fyrsta skipti sem aðalþjálfari.
kominn í brúna Ríkharður mun reyna fyrir sér í fyrsta skipti sem aðalþjálfari. fréttablaðið/daníel

„Þetta leggst gríðarlega vel í mig. Ég hefði ekki lagt í að taka starfið að mér ef ég hefði ekki fína tilfinningu fyrir því,“ sagði Ríkharður Daðason, nýráðinn þjálfari Fram við Fréttablaðið.

„Ég kom inn með Þorvaldi árið 2011 og það var mjög skemmtilegt. Þá kynntist ég strákunum og það gerði valið auðveldara því þetta eru skemmtilegir strákar og góðir fótboltamenn.“

Ríkharður segist ekki hafa gengið með þjálfaradrauminn í maganum lengi.

„Þetta hefur komið og farið hjá mér. Þegar ég hætti í fótbolta þá hafði ég engan áhuga á þessu. Þremur árum seinna var ég kominn af stað aftur. Fótbolti er hluti af mínu lífi og ég berst ekkert gegn því. Þetta er síðan stórt tækifæri sem ekkert allir fá. Það eru forréttindi að fá það og mér datt því ekki í hug að hafna því.“

Framherjinn fyrrverandi er á reynslutíma hjá Fram út tímabilið. Þetta er einnig ákveðinn reynslutími fyrir hann sjálfan. Hann segist sjá eftir þennan tíma hvort þetta sé eitthvað sem hann vill leggja fyrir sig.

„Það getur vel verið að ég verði alveg vonlaus í þessu og þá er ekkert sanngjarnt fyrir félagið að semja til lengri tíma. Það kemur allt í ljós hvort þetta eigi eitthvað við mig,“ sagði Ríkharður.

Býr meira í liðinu
markið fræga Það gleymist seint er Ríkharður kom Íslandi yfir gegn heimsmeisturum Frakka.fréttablaðið/xx

Hann vill ekki gefa upp hvað hann telji að liðið eigi að geta náð langt. Hann segir þó að það búi meira í liðinu en það hafi sýnt. Þannig hafi það reyndar verið ansi lengi. „Þorvaldur breytti miklu þegar hann kom til félagsins og reif það upp. Kom því í toppbaráttu og Evrópukeppni og minnti fólk á að þetta var félag sem hefur unnið 18 Íslandsmeistaratitla. Markmiðið er því að gera Framliðið aftur samkeppnishæft. Þessi hópur núna er góður og getur gert betur. Þessi atburðarás fór væntanlega af stað af því Þorvaldur og aðrir teldu að svo væri.“

Á löngum og glæstum ferli spilaði Ríkharður undir stjórn margra frábærra þjálfara. Hvernig þjálfari verður hann aftur á móti? „Ég er örugglega þjálfari sem nær hlutum fram með samræðum. Ég er leiðbeinandi í mér og get vonandi miðlað því sem ég kann. Ég mun höfða til skynsemi manna og að við vinnum saman. Ég held ég sé enginn harðstjóri og efast um að ég verði í hörðum tónum og reyni að þvinga menn til einhvers sem fer ekki vel í þá.“

Enginn fyrirvari hjá Þorvaldi

Brynjar Jóhannesson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segir að ákvörðun Þorvalds hafi komið sér á óvart. „Það var enginn fyrirvari á þessari ákvörðun. Þetta kom samt ekki á óvart í ljósi þess að hann var hættur í haust en við fengum hann til þess að halda áfram,“ sagði Brynjar en hann vildi lítið gefa upp um ástæðurnar fyrir því að Þorvaldur ákvað að hætta.

„Hann var bara orðinn þreyttur og vildi losna. Það var svo allt gert í góðu.“

Brynjar og félagar í stjórn Fram voru fljótir að finna arftakann. Hann segir að þeir hafi fengið þann mann sem þeir vildu fá.

„Hann var okkar fyrsti kostur og við töluðum ekki við neinn annan. Hann var sammála okkur í því að byrja á því að hugsa út tímabilið. Svo sjáum við hvað setur með framtíðina í lok sumars.“

Auðun Helgason verður aðstoðarþjálfari Ríkharðs og hann kemur að undirlagi nýja þjálfarans en þeir þekkjast vel. Helgi Sigurðsson, sem var aðstoðarþjálfari Þorvalds, er á förum frá félaginu.


Tengdar fréttir

Auðun aðstoðar Ríkharð með Fram

Ríkharður Daðason verður þjálfari karlaliðs Fram í fótbolta út tímabilið. Auðun Helgason verður hægri hönd Ríkharðs.

Helgi hættir hjá Fram

Helgi Sigurðsson, sem var hægri hönd Þorvalds Örlygssonar hjá Fram, er hættur störfum hjá félaginu.

Ríkharður tekur við Fram

Ríkharður Daðason verður næsti þjálfari karlaliðs Fram í knattspyrnu. Tilkynnt verður um ráðningu hans í dag.

Ég mun alltaf elska Þorvald

Leikmönnum Fram brá í brún þegar þeir heyrðu af uppsögn Þorvalds Örlygssonar sem þjálfari karlaliðs félagsins í gær.

Þorvaldur ætlaði að hætta í haust

Brynjar Jóhannesson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segist stefna að því að ganga frá ráðningu nýs þjálfara á morgun.

Þorvaldur hættur hjá Fram

Þorvaldur Örlygsson er hættur sem þjálfari Fram í Pepsi-deild karla. Hann fór fram á við stjórn knattspyrnudeildar félagsins að verða leystur undan störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×