Held ég sé enginn harðstjóri Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. júní 2013 06:00 kominn í brúna Ríkharður mun reyna fyrir sér í fyrsta skipti sem aðalþjálfari. fréttablaðið/daníel „
Þetta leggst gríðarlega vel í mig. Ég hefði ekki lagt í að taka starfið að mér ef ég hefði ekki fína tilfinningu fyrir því,“ sagði Ríkharður Daðason, nýráðinn þjálfari Fram við Fréttablaðið. „Ég kom inn með Þorvaldi árið 2011 og það var mjög skemmtilegt. Þá kynntist ég strákunum og það gerði valið auðveldara því þetta eru skemmtilegir strákar og góðir fótboltamenn.“ Ríkharður segist ekki hafa gengið með þjálfaradrauminn í maganum lengi. „Þetta hefur komið og farið hjá mér. Þegar ég hætti í fótbolta þá hafði ég engan áhuga á þessu. Þremur árum seinna var ég kominn af stað aftur. Fótbolti er hluti af mínu lífi og ég berst ekkert gegn því. Þetta er síðan stórt tækifæri sem ekkert allir fá. Það eru forréttindi að fá það og mér datt því ekki í hug að hafna því.“ Framherjinn fyrrverandi er á reynslutíma hjá Fram út tímabilið. Þetta er einnig ákveðinn reynslutími fyrir hann sjálfan. Hann segist sjá eftir þennan tíma hvort þetta sé eitthvað sem hann vill leggja fyrir sig. „Það getur vel verið að ég verði alveg vonlaus í þessu og þá er ekkert sanngjarnt fyrir félagið að semja til lengri tíma. Það kemur allt í ljós hvort þetta eigi eitthvað við mig,“ sagði Ríkharður.Býr meira í liðinu markið fræga Það gleymist seint er Ríkharður kom Íslandi yfir gegn heimsmeisturum Frakka.fréttablaðið/xxHann vill ekki gefa upp hvað hann telji að liðið eigi að geta náð langt. Hann segir þó að það búi meira í liðinu en það hafi sýnt. Þannig hafi það reyndar verið ansi lengi. „Þorvaldur breytti miklu þegar hann kom til félagsins og reif það upp. Kom því í toppbaráttu og Evrópukeppni og minnti fólk á að þetta var félag sem hefur unnið 18 Íslandsmeistaratitla. Markmiðið er því að gera Framliðið aftur samkeppnishæft. Þessi hópur núna er góður og getur gert betur. Þessi atburðarás fór væntanlega af stað af því Þorvaldur og aðrir teldu að svo væri.“ Á löngum og glæstum ferli spilaði Ríkharður undir stjórn margra frábærra þjálfara. Hvernig þjálfari verður hann aftur á móti? „Ég er örugglega þjálfari sem nær hlutum fram með samræðum. Ég er leiðbeinandi í mér og get vonandi miðlað því sem ég kann. Ég mun höfða til skynsemi manna og að við vinnum saman. Ég held ég sé enginn harðstjóri og efast um að ég verði í hörðum tónum og reyni að þvinga menn til einhvers sem fer ekki vel í þá.“Enginn fyrirvari hjá Þorvaldi Brynjar Jóhannesson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segir að ákvörðun Þorvalds hafi komið sér á óvart. „Það var enginn fyrirvari á þessari ákvörðun. Þetta kom samt ekki á óvart í ljósi þess að hann var hættur í haust en við fengum hann til þess að halda áfram,“ sagði Brynjar en hann vildi lítið gefa upp um ástæðurnar fyrir því að Þorvaldur ákvað að hætta. „Hann var bara orðinn þreyttur og vildi losna. Það var svo allt gert í góðu.“ Brynjar og félagar í stjórn Fram voru fljótir að finna arftakann. Hann segir að þeir hafi fengið þann mann sem þeir vildu fá. „Hann var okkar fyrsti kostur og við töluðum ekki við neinn annan. Hann var sammála okkur í því að byrja á því að hugsa út tímabilið. Svo sjáum við hvað setur með framtíðina í lok sumars.“ Auðun Helgason verður aðstoðarþjálfari Ríkharðs og hann kemur að undirlagi nýja þjálfarans en þeir þekkjast vel. Helgi Sigurðsson, sem var aðstoðarþjálfari Þorvalds, er á förum frá félaginu.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Auðun aðstoðar Ríkharð með Fram Ríkharður Daðason verður þjálfari karlaliðs Fram í fótbolta út tímabilið. Auðun Helgason verður hægri hönd Ríkharðs. 3. júní 2013 14:30 Helgi hættir hjá Fram Helgi Sigurðsson, sem var hægri hönd Þorvalds Örlygssonar hjá Fram, er hættur störfum hjá félaginu. 3. júní 2013 14:49 Ríkharður tekur við Fram Ríkharður Daðason verður næsti þjálfari karlaliðs Fram í knattspyrnu. Tilkynnt verður um ráðningu hans í dag. 3. júní 2013 12:00 Ég mun alltaf elska Þorvald Leikmönnum Fram brá í brún þegar þeir heyrðu af uppsögn Þorvalds Örlygssonar sem þjálfari karlaliðs félagsins í gær. 3. júní 2013 08:27 Þorvaldur ætlaði að hætta í haust Brynjar Jóhannesson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segist stefna að því að ganga frá ráðningu nýs þjálfara á morgun. 2. júní 2013 21:58 Þorvaldur hættur hjá Fram Þorvaldur Örlygsson er hættur sem þjálfari Fram í Pepsi-deild karla. Hann fór fram á við stjórn knattspyrnudeildar félagsins að verða leystur undan störfum. 2. júní 2013 21:30 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira
Auðun aðstoðar Ríkharð með Fram Ríkharður Daðason verður þjálfari karlaliðs Fram í fótbolta út tímabilið. Auðun Helgason verður hægri hönd Ríkharðs. 3. júní 2013 14:30
Helgi hættir hjá Fram Helgi Sigurðsson, sem var hægri hönd Þorvalds Örlygssonar hjá Fram, er hættur störfum hjá félaginu. 3. júní 2013 14:49
Ríkharður tekur við Fram Ríkharður Daðason verður næsti þjálfari karlaliðs Fram í knattspyrnu. Tilkynnt verður um ráðningu hans í dag. 3. júní 2013 12:00
Ég mun alltaf elska Þorvald Leikmönnum Fram brá í brún þegar þeir heyrðu af uppsögn Þorvalds Örlygssonar sem þjálfari karlaliðs félagsins í gær. 3. júní 2013 08:27
Þorvaldur ætlaði að hætta í haust Brynjar Jóhannesson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segist stefna að því að ganga frá ráðningu nýs þjálfara á morgun. 2. júní 2013 21:58
Þorvaldur hættur hjá Fram Þorvaldur Örlygsson er hættur sem þjálfari Fram í Pepsi-deild karla. Hann fór fram á við stjórn knattspyrnudeildar félagsins að verða leystur undan störfum. 2. júní 2013 21:30