Verðbólgan ekki verið minni í tvö ár 22. maí 2013 06:00 Í búðarferð Hagstofan birtir verðbólgumælingu sína næsta miðvikudag. Fréttablaðið/Stefán
Tólf mánaða verðbólga stendur í stað í 3,3 prósentum í maí samkvæmt nýjum spám greiningardeilda Arion banka og Íslandsbanka. Greining Íslandsbanka bendir á að verðbólga hafi þá ekki verið minni í tvö ár. Greiningardeild Arion banka bendir á að krónan hafi veikst um tvö prósent frá verðlagsmælingu Hagstofunnar í apríl. Veikingin hafi haldið aftur af lækkunum í mælingu vísitölu neysluverðs í síðustu viku. „Hins vegar mælist styrking krónunnar 7,5 prósent frá hæsta gildi hennar frá því í lok janúar sem gefur söluaðilum svigrúm til lækkunar eins og sýndi sig á verði nýrra bíla, eldsneytis og matvöru í verðkönnun okkar fyrir maí.“ Þá er mikil óvissa sögð í spánni fyrir næstu mánuði. Gert er ráð fyrir að verðbólga hjaðni í júní, en fari svo hækkandi fram á haustið. „Þá verður að hafa í huga að gerð kjarasamninga er yfirvofandi næstkomandi haust og er hætt við því að launþegar geri kröfur um ríflegar launahækkanir,“ segir greiningardeild Arion banka. Um leið er bent á að ríkisstjórnin sem verið sé að mynda hafi sem yfirlýst markmið að lækka skatta og auka þensluhvetjandi aðgerðir. „Ef slíkar aðgerðir koma til of snemma og of hratt má gera ráð fyrir að þær torveldi Seðlabankanum að ná niður verðbólguvæntingum sem leiðir til þess að verðbólga hjaðnar hægar en ella.“- óká
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira