Varúðar ekki gætt á vatnsverndarsvæðinu Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 22. maí 2013 06:00 Gat komið á tankinn og starfsmenn reyna að koma í veg fyrir lekann. Alls láku 600 lítrar úr tankinum. mynd/OR
Ekki var staðið rétt að uppsetningu olíugeymis við Þríhnúkagíga í Bláfjöllum, samkvæmt úttekt Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Umhverfisráðherra hefur, að beiðni OR, boðað hagsmunaðila á fund um málið, sem fram fer á miðvikudag í næstu viku. Í erindi OR til ráðherra kemur fram að í leyfi Umhverfisstofnunar fyrir uppsetningu aðstöðunnar á Þríhnúkagíg, sem gefið var út í desember í fyrra, sé ekki nefnt að olíutankur verði settur upp við gíginn. Þá hafi ekki verið leitað umsagnar hagsmunaaðila vatnsverndar við veitingu leyfisins. Olíutankur, sem verið var að flytja á svæðið, féll úr tveggja til þriggja metra hæð og um 600 lítrar af olíu flæddu úr honum. Svæðið er á vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri OR, segir að skoðun fyrirtækisins hafi leitt til þess að rétt væri að fá utanaðkomandi aðila til að skoða allt ferlið. Þess vegna hafi verið leitað til umhverfis- og auðlindaráðherra. „Það er alveg ljóst að þegar svona atburður verður er mikilvægt að draga einhvern lærdóm af honum.“ Í erindi OR segir að olía hafi verið flutt eftirlitslaust með vörubíl upp í Bláfjöll og eldsneyti hafi verið dælt á þyrlu, inni á vatnsverndarsvæðinu, án sjáanlegra lekavarna. OR gagnrýnir einnig framgöngu eigin starfsmanna, en fluttir voru 4.000 lítrar af olíu á svæðið umfram þörf. „OR leyfði bílnum að fara um þrátt fyrir frávik frá öryggisreglum,“ segir í erindinu. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir gríðarlega hagsmuni undir í málinu, enda snerti það vatnsverndarsvæði þéttbýlasta svæði landsins. „Það er hafið yfir allan vafa að ráðuneytið og ráðherra taka svona erindi alvarlega.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira