Viðskipti innlent

Mikil tækifæri í Kína fyrir þá þolinmóðu

Þorgils Jónsson skrifar
Magnús Bjarnason
Magnús Bjarnason
Mikil tækifæri bíða íslenskra útflutningsfyrirtækja í Kína eftir að fríverslunarsamningur Íslands við Kína tekur gildi. Þetta sagði Magnús Bjarnason, forstjóri Icelandic Group, í erindi sínu á kynningarfundi sem Íslensk-kínverska verslunarráðið stóð fyrir í gær. Þolinmæði sé þó nauðsynleg.

Íslensk og kínversk stjórnvöld undirrituðu um miðjan síðasta mánuð samning sem felur í sér afnám tolla af öllum helstu útflutningsvörum Íslendinga til Kína. Þar á meðal eru allar sjávarafurðir, en algengir tollar af þeim eru nú á bilinu tíu til tólf prósent.

Sjávarafurðir eru sem stendur 90% af íslenskum útflutningi til Kína, þó að það sé ekki umtalsverður hluti af heildarútflutningi Íslands.

„Hins vegar eru vaxtartækifærin gríðarleg og ef við horfum á umfang íslensks sjávarútvegs er ljóst að við getum spilað ákveðna rullu í Kína,“ segir Magnús og bætir við að Icelandic Group hafi unnið að því að koma sér upp vinnslu í Kína frá því seint á síðasta ári.

Kína hefur verið mikilvægur markaður fyrir afurðir sem hafa ekki gengið eins vel í hefðbundna markaði, til dæmis sæbjúgu, grásleppu og grálúðu, en Magnús segir efnahagslega framþróun síðustu ára í Kína skila sér í breyttu neyslumynstri.

„Það er gott að eiga markað í Kína fyrir afurðir sem aðrir vilja síður, en ég held hins vegar að við þurfum að fylgja fordæmi þeirra sem hafa náð mestum árangri í Kína, og það er að bjóða upp á bestu hugsanlegu lausnir.“

Magnús segir kínverska neytendur afar kröfuharða og þeir velji aðeins það besta. Lykillinn að árangri í Kína sé því að bjóða neytendum upp á sömu vörur og seldar eru á þróaðri markaði, til dæmis til Bretlands.

„Þarna eru mikil tækifæri fyrir þá sem hafa þolinmæði til að byggja upp markaðina, hvort sem um er að ræða sjávarútveg eða aðrar greinar.“

Alþingi á eftir að samþykkja samninginn til að hann öðlist gildi, en Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra og aðalsamningamaður Íslands, sagði á fundinum að vonast væri til þess að samningurinn kæmi fyrir haustþing og tæki gildi í upphafi næsta árs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×