Matarmarkaður verði á Lækjartorgi í sumar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 6. mars 2013 06:00 Líf á Lækjartorgi Verkefnahópi skipulagsfulltrúa leist ekki á hugmynd um matarmarkað við höfnina en telur Lækjartorg ákjósanlegan stað fyrir markaðinn.Fréttablaðið/pjetur
Verkefnahópur á vegum Reykjavíkurborgar leggur til að fjölbreyttur matarmarkaður verði á Lækjartorgi í sumar og að utanaðkomandi ráðgjafi komi á sambandi við sölumenn. Hópurinn sér Hlemm sem markaðshöll þegar Strætó hefur flutt. „Við stefnum að því að markaðurinn heppnist vel og verði vel sóttur,“ segir Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt sem fer fyrir verkefnahópi sem leggur til að matarmarkaði verði komið upp á Lækjartorgi næsta sumar. „Á markaðnum skal vera gott úrval af vörum til sölu,“ segir í niðurstöðum verkefnahópsins sem er á vegum skipulagsfulltrúa Reykjavíkur. Hópnum var falið að kanna hugmynd að vefnum Betri Reykjavík um matarmarkað við höfnina. Eftir að hafa skoðað ýmsar staðsetningar í miðborginni segir hópurinn hins vegar Lækjartorg ákjósanlegt fyrir slíkan markað. Í tillögu hópsins er gert ráð fyrir að matarmarkaðurinn verði haldinn fjóra laugardaga, en oftar ef vel tekst til. „Erfiðlega hefur gengið að koma á matarmarkaði í Reykjavík hingað til,“ segir hópurinn sem ræddi við ýmsa mögulega söluaðila. „En það var ekki að finna mikinn áhuga á að taka þátt.“ Þá segir að Fiskmarkaðnum við höfnina árið 2010 og „Full borg matar“-markaðnum hafi gengið erfiðlega að fá seljendur. „Söluaðilar nefndu margar ástæður fyrir þessu en helst var þó nefnt að kostnaður við þátttöku væri mikill en ávinningur lítill,“ segir í umsögninni þar sem þó er tekið fram að mjög stórir og velheppnaðir markaðir hafi verið við verslunina Búrið í Nóatúni fyrir jólin 2011 og 2012. Utan um þann markað hafi verið haldið af mikill þekkingu og reynslu á markaðshaldi. „Því er lagt til að ráðinn verði utanaðkomandi ráðgjafi til þess að koma á sambandi við söluaðila og skipuleggja markaðinn,“ segir starfshópurinn sem leggur til að svokallaður biðstjóri annist umsjón markaðarins, meðal annars uppsetningu tjalda og skjólveggja. Faxaflóahafnir eru sagðar munu lána söluborð með vöskum fyrir fisk og kjöt. Varðandi söluvörurnar segir verkefnahópurinn að líta eigi til þess að vera frekar með „góða blöndu“ en marga seljendur. Í umsögninni er horft til framtíðar. Miklir möguleikar séu á að nýta megi Hlemm sem markaðshöll þegar starfsemi Strætó flyst þaðan. „Þar væri hægt að hafa markað bæði inni í húsinu og fyrir utan það,“ segir í umsögninni sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira