Innlent

Segir nýtt framboð ekki útilokað

Þorgils Jónsson skrifar
Jón Bjarnason mun sitja utan flokka það sem eftir lifir kjörtímabils eftir að hann sagði sig úr þingflokki VG í gær.Fréttablaðið/Stefán
Jón Bjarnason mun sitja utan flokka það sem eftir lifir kjörtímabils eftir að hann sagði sig úr þingflokki VG í gær.Fréttablaðið/Stefán
Jón Bjarnason, sem sagði sig úr þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs (VG) í gær, útilokar ekki að bjóða sig fram undir merkjum nýs flokks í komandi kosningum.

„Það er ekki mál sem er í kortunum og algjörlega ótengt því sem er að gerast núna," sagði Jón aðspurður í samtali við Fréttablaðið. Inntur frekar eftir því hvort eitthvað sé hæft í því að hann sé að vinna að nýju framboði með Atla Gíslasyni, sem hafði áður sagt sig úr þingflokki VG, segir Jón:

„Við skulum láta einn dag nægja í þessum efnum og ég mun áfram berjast fyrir mínum hugsjónum og fólk veit fyrir hvað ég stend."

Jón er fjórði þingmaður VG sem yfirgefur þingflokkinn á kjörtímabilinu, en áður höfðu Atli, Lilja Mósesdóttir og Ásmundur Einar Daðason farið þá leið. Jón mun sitja utan flokka þær vikur sem eftir eru af yfirstandandi þingi. Stjórnarflokkarnir hafa nú aðeins 30 þingmenn og þurfa að reiða sig á stuðning annarra flokka. Jón segist aðspurður munu styðja „góð mál" hjá ríkisstjórninni, „en ekkert umfram það".

Varðandi ástæður þess að hann segi sig nú úr þingflokknum segir hann að margt spili inn í, meðal annars forgangsröðun í málefnum landsbyggðarinnar, en þróun mála í Evrópumálum hafi ráðið baggamuninn.

„Þingflokkurinn krafðist þess að ég færi úr utanríkismálanefnd vegna afstöðu minnar til umsóknar að Evrópusambandinu. Ég hef barist gegn aðild og talið að við ættum að stöðva þessa umsókn.

Þingflokkurinn er á annarri skoðun og því eigum við ekki samleið," segir Jón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×