Samningar styttir og friðurinn tryggður 22. janúar 2013 07:00 Forsvarsmenn SA og ASÍ skrifuðu í gær undir samkomulag um að stytta kjarasamninga og hefja samráð um framtíðarsýn um kaupmátt og efnahagslegan stöðugleika. FRéttablaðið/Anton
Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) munu þegar hefja vinnu að undirbúningi nýrra kjarasamninga með það fyrir augum að móta sameiginlega sýn á launamál og kaupmátt auk þess að tryggja vöxt og efnahagslegan stöðugleika. Þetta er megininntakið í samkomulagi SA og ASÍ frá í gær. Samningunum er ekki sagt upp og umsamdar launahækkanir upp á 3,25% koma til framkvæmda um næstu mánaðamót. Gildistími samninganna er hins vegar styttur svo að þeir munu renna úr gildi í nóvember næstkomandi, tveimur mánuðum fyrr en til stóð, þegar þeir voru undirritaðir vorið 2011. Samkomulagið kveður einnig á um að samtökin reyni að ná samstöðu um atvinnustefnu, sem verði lögð fyrir stjórnmálaflokkana í aðdraganda alþingiskosninga. Eftir kosningar verði svo unnin raunhæf aðgerðaáætlun til næstu ára. Þá verði leitast við að ná samstöðu um aðferðir í gengis- og peningamálum, jöfnun lífeyrisréttinda og unnið gegn svartri atvinnustarfsemi og kennitöluflakki. Jafnframt munu samtökin beita sér fyrir aðgerðum til að lækka verðlag, til dæmis með „aðhaldi að verðhækkunum fyrirtækja og gjaldskrárhækkunum opinberra aðila“. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segist í samtali við Fréttablaðið vera ánægður með samkomulagið, í ljósi aðstæðna. Um það ríki breið sátt innan hreyfingarinnar. „Það tryggir bæði að umsamdar kauphækkanir komi til framkvæmda, sem var ekki sjálfsagt, og að friður muni ríkja á vinnumarkaði fram á haustið.“ Gylfi segir að hefði samningum verið sagt upp að þessu sinni, hefðu viðræður getað orðið erfiðar viðfangs. Spurður hvort hann sé bjartsýnn fyrir haustið játar Gylfi en kallar eftir breiðri samstöðu um framhaldið. „Ég verð að vera bjartsýnn, en það tekst ekki nema að það verði sameiginlegt átak, og stjórnvöld verða að koma að borðinu á þeim nótum.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira