Nam sjö ára telpur á brott og braut á þeim Stígur Helgason skrifar 19. janúar 2013 06:00 Eftirlýstur Maðurinn var eftirlýstur af lögreglu dagpart en gaf sig síðan sjálfur fram.
Maður situr í gæsluvarðhaldi grunaður um kynferðisbrot gegn tveimur sjö ára stúlkum. Hann sagðist hafa séð þær stela nammi, skipaði þeim að koma með sér og ók með þær á afvikinn stað. Grafalvarlegt mál að stela börnum, segir lögregla. Karlmaður á fertugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa gabbað tvær sjö ára telpur upp í bíl sinn í Árbæ á þriðjudag brotið á þeim kynferðislega. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að maðurinn sé í haldi, grunaður um að hafa brotið á stúlkunum. Hann segir málið litið alvarlegum augum. „Það er auðvitað grafalvarlegt mál að nema börn svona á brott – að stela börnum í rauninni," segir hann. Hann segir að brotið geti varðað við 193. ákvæði hegningarlaga sem kveður á um barnsrán. Við því liggur að hámarki sextán ára fangelsi. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir manninum, sem kveðinn var upp á þriðjudag, er meðal annars grundvallaður á því. Björgvin varðist frekari fregna af málinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins höfðu stúlkurnar stolist til að taka sælgæti ófrjálsri hendi úr nammibarnum í verslun Krónunnar í Árbæ. Þær stóðu síðan fyrir utan búðina og gæddu sér á fengnum þegar maðurinn gaf sig á tal við þær, sagðist hafa séð til þeirra og að þær þyrftu að koma með honum. Hann mun þó ekki hafa villt á sér heimildir sem lögreglumaður. Telpurnar settust upp í bíl til mannsins, sem ók með þær á afvikinn stað, þar sem hann er talinn hafa brotið gegn þeim kynferðislega. Hann skilaði þeim síðan aftur í nágrenni búðarinnar. Brotin munu þó ekki hafa verið af allra grófasta tagi. Lögregla lýsti eftir manninum á þriðjudag eftir að hafa fengið tilkynningu um málið. Maðurinn gaf sig sjálfur fram í kjölfarið að myndir birtust af honum í fjölmiðlum. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til mánudags vegna rannsóknarhagsmuna.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira