Nærri helmingur vill ljúka aðildarviðræðum við ESB 18. janúar 2013 06:00 Nordicphotos/Getty
Um 36 prósent landsmanna vilja draga aðildarumsókn að ESB til baka og 49 prósent vilja að viðræðunum verði lokið. Rúm 15 prósent vilja gera hlé á viðræðum eins og Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur leggja til. Tæpur helmingur landsmanna vill að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið (ESB) verði lokið samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Þriðjungur vill draga umsóknina til baka og fimmtán prósent vilja gera hlé á viðræðunum og ákveða framhaldið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Alls sögðust 48,5 prósent þeirra sem afstöðu tóku til spurningarinnar vilja að aðildarviðræðurnar yrðu kláraðar og aðildarsamningurinn borinn undir þjóðaratkvæði. Um 36,4 prósent sögðust vilja að umsókn Íslands yrði dregin til baka. Formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks lögðu ásamt Jóni Bjarnasyni, þingmanni Vinstri grænna, fram formlega tillögu í utanríkismálanefnd Alþingis í byrjun árs þess efnis að hlé yrði gert á aðildarviðræðunum og þær ekki hafnar nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú hugmynd virðist njóta fremur lítils stuðnings, en 15,2 prósent landsmanna vilja fara þá leið samkvæmt könnuninni. Fréttablaðið kannaði hug landsmanna til aðildarumsóknarinnar síðast í byrjun desember 2011. Þá vildu 65,3 prósent ljúka viðræðunum en 34,7 prósent draga umsóknina til baka. Þá var umræða um möguleikann á að gera hlé á aðildarviðræðum og greiða atkvæði um framhaldið ekki komin á flug, sem torveldar samanburð á niðurstöðum þeirrar könnunar og könnunarinnar sem gerð var í gærkvöldi og fyrrakvöld. Við framkvæmd könnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 var hringt þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki. Hringt var miðvikudaginn 16. janúar og fimmtudaginn 17. janúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvernig vilt þú að framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið verði háttað? Svarmöguleikarnir þrír voru lesnir upp í handahófskenndri röð. Alls tóku 78,1 prósent þeirra sem tóku þátt afstöðu til spurningarinnar.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Fleiri fréttir Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu Sjá meira