Innlent

Nauðsynlegt að fræða börnin um ofbeldið

sunna@frettabladid.is skrifar
Kolbrún Baldursdóttir
Kolbrún Baldursdóttir
Fræðsla barna um kynferðislegt ofbeldi er langbesta forvörnin gegn því. Best er ef fræðslan kemur frá foreldrum barnanna en einnig er hægt að leita til skóla eða félagasamtaka ef foreldrar geta ekki eða treysta sér ekki til að ræða málið við börnin sín.

Þetta segir Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur sem hefur haldið námskeið í fræðslu fyrir foreldra, skóla, félaga- og íþróttasamtök í fjölda ára um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í samfélaginu. Kolbrún á sjálf tvær dætur og hafði rætt við þær um þessi viðkvæmu mál þegar þær voru fimm ára gamlar. Hún bendir þó á að foreldrar þekki börnin sín best og finni sjálfir hvenær það hentar.

„Umræðan er best á heimilinu, þegar það er hægt. Það eru ákveðnar reglur sem nauðsynlegt er að ræða, en einnig verður að gæta þess að hræða börnin ekki og segja hluti eins og að það séu vondir menn þarna úti. Frekar að það séu ekki allir jafn góðir,“ segir Kolbrún. „Ef einhver ókunnugur biður mann um að koma, gefur manni eitthvað eða annað slíkt, á maður að segja skýrt nei, fara í burtu og segja svo frá.“

Kolbrún segir nauðsynlegt að brýna fyrir börnum að enginn eigi að eiga „vond leyndarmál“, eða leyndarmál sem láta barninu líða illa. „Þegar við erum búin að ræða þetta við ung börn, verða þau svo mikið hæfari, afslappaðri og öruggari í umhverfi sínu.“

Kolbrún segist hafa skynjað breytingar á umræðunni í samfélaginu eftir umfjöllun Kastljóss í vikunni og bendir á að börn verða einnig fyrir áhrifum af henni án þess að foreldrar geri sér endilega grein fyrir því.

„Ég vil því hvetja foreldra að gæta að líðan barna sinna í þessu sambandi, útskýra, svara spurningum sem vakna og ræða þetta allt eftir því sem aldur og þroski leyfir,“ segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×