Bjó í gömlu björgunarskipi frá Íslandi 9. janúar 2013 05:00 Sigurvin Stein Kjetil Fredriksen bjó í skipinu sem áður var björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði. Mynd/Hilmar Snorrason
Norðmaðurinn sem féll í skotbardaga við dönsku lögregluna á sunnudagskvöld, Stein Kjetil Fredriksen, var búsettur í gömlu íslensku björgunarskipi, Sigurvin. Skipið hafði hann gert upp og geymdi í skerjagarðinum við Arendal. Sigurvin er um 18 metrar á lengd og var smíðaður í Þýskalandi á sjöunda áratugnum. Slysavarnarfélagið fékk skipið árið 1997, að sögn Hilmars Snorrasonar, skólastjóra Slysavarnarskólans. Sigurvin var staðsettur á Siglufirði allt til ársins 2006 og reyndist afar vel, að sögn Hilmars. Eftir að Slysavarnarfélagið seldi Sigurvin lá hann mikið við bryggju í Reykjavík þangað til hann var seldur til Noregs árið 2009. Dagbladet í Noregi hefur eftir vini Fredriksens að skipið hafi verið illa farið þegar hann keypti það á sínum tíma, en Fredriksen hafi gert það upp með myndarbrag. Fredriksen, sem var 49 ára gamall, var lengi bendlaður við sitthvað misjafnt en aldrei í líkingu við það sem upp komst um helgina, er hann reyndi við þriðja mann að smygla 250 kílóum af hassi frá Ålbæk í Norður-Jótlandi. Smyglararnir reyndu að komast undan á hraðbátnum sem notaður var til verknaðarins. Sérsveitarmaður stökk um borð í bátinn en særðist í skotárás frá Fredriksen. Lögregla svaraði skothríðinni og hitti hann fjórum skotum í brjóst og höfuð svo hann lést samstundis. - þj
Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Myndband sýnir ferðamenn hætt komna í miklum öldugangi við Reynisfjöru Innlent Kalt veður skilaði metári í vatnsnotkun Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Geta læknað unglingaveikina Erlent Myndskeið frá Jökulsárlóni: „Tifandi tímasprengja“ Innlent Fleiri fréttir Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Sjá meira